Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, mars 30, 2006

Nátthrafn sem blaðrar í svebbni

Mig óraði ekki fyrir því að ég væri ein af þeim sem samkjaftaði ekki í svebbni. Þegar ég vaknaði í morgun bað ég um stubbaknus eða stórt faðmlag, þá var mér bent á það að ég hefði verið blaðrandi í nótt um alveg hreint ótrúlegan hlut, hvort opið væri framá gang því það væri svo mikill kuldi í svefnherberginu, ég man ekki svipinn enn get rétt ýmindað mér viðbrögðin frá Þrándi, Beta mín það er vegna þess að svefbbnherbergisdyrnar standa galopnar framí stofu, daaah, TÍHÍ.
Ég er enn að rembast við að læra í Jarðfræðinni, það þarf sterkt bein í nebbanum til að koma hlutum í verk stöku sinnum, annaðhvort skortir mig bein í nebbann eða sjálfsagann, måske hvort tveggja.
Ég get samt varla beðið ettir páskunum, ekki það að ég ætli að planta mér í stofunni fyrir framan barnatímann og háma í mig súkkulaði-egg, nei ekki beint, enn tíminn sem næst til að rækta sambandið við fjölskylduna og sína nánustu er dýrmætur, hvað er betra enn snæða góðan málsverð með öllum þeim sem standa þér næstir í þessu blessaða lífi og gefa tilgangi og tilvist þinni á þessari blessaðri jörð tilgang.
Í sakleysi okkar lágum við skötuhjúin eins og tvær klessur í rúminu í gærkvöldi með think-padið á milli okkar á glugga í myndina Fluerne På Væggen, sem er nokkurskonar dönsk heimildar mynd, sem svífst einskis, þar teflir saman hinum ýmsu svikamyllum sem fyrir fynnast í dönsku þingkerfi og ung kona að nabbni My sem er komin á ansi heitar slóðir og er söguþráðurinn rekinn út frá annars vegar hennar sjónarhorni og hins vegar dansk þingmanns í tilvistarkreppu, TÍHÍ.
Enn aftur að gærkvöldinu, í miðjum klíðum þá hringjir ericsson síminn minn, litla ljósið mitt, tíhí, hinu megin á línunni er Jóhanna frænka, hún virðist vera að kabbna úr tilhlökkun og kemur því loksins útúr sér að ég eigi að stilla á léttbylgjuna á útvarpinu mínu, ríf ég tölvuna úr fanginu af Þrándi með tilheyrandi látum og ræðst í að fynna stöðina að sökum þess að útvarp er eitt af því sem væri tilvalin gjöf til okkar, því það fyrirfynnst ekki í kotinu okkar í Rauðalæknum, þá glymur þessi gamli slagari sem ég og Jóhanna frænka vorum vanar að raula með uppí rúmi hjá henni í DENN undir sæng með tárvot augun, hún raulaði restina af laginu fyrir mig og svo sobbnaði ég vært eins og lítið barn sem hefði fengið að heyra vögguvísuna sína rétt fyrir svebbninn, tíhí.
Enn að allt öðru, það grípur óhug að lesa þessar fréttir, það er fjarri að H5N1 sé eina skaðlega flensugerðin. Eins og gefur að skilja er H5N1 einungis eitt af mörgum afbrigðum en níu gerðir eru til bæði af H-stofni veirunnar og N-stofni hennar. Asíuflensan, sem braust út á árunum 1889-90, var t.d. H2N2 afbrigði flensunnar af A-stofni en spænska veikin var H1N1 afbrigði hennar. Auk þessa eru fjölmargar aðrar flensugerðir til sem hrjáð hafa menn í gegnum tíðina. Ég veitikki með ykkur mínir kæru vinir enn hvers þurfum við að gjalda í þessum heimi, þegar það má ekki lengur borða það kjöt sem var eitt sinn talið hvað hollast og best fyrir beinin, eins og ég nebbdi fyrr þurfum við ekki öll að bera sterkt bein í nebbanum? huuum, góðir straumar til þeirra sem minna meiga sín, farin að hella uppá annan kaffibolla og taka þvottinn af snúrunni ég er búin að vera alltof löt í hússtörfunum undanfarna dagan engin misskun, knus knus.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

er mín alltaf að þrífa hahhhhhhhhhhhh

8:45 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehe þú ættir að fara að mennta þig sem sérfræðingur sem sér um H5N1 veiruna ;) ekki vera svona paranoid Beta mín.. :) við skulum ekki vera það fyrr en einhver hér á Íslandi fer að smitast :S og svo er ekki sjénsinn að ég hætti að borða kjúkling! það þarf bara að elda þetta rétt og í nógu langan tíma með nógu mikinn hita til að drepa þessi kvikindi :) en ég er ánægð að heyra hvað þú ert happy Beta mín! alveg yndislegt :) love ya :*

10:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home