Konan hrýtur og von á kettling
Ég hef alltaf verið þekkt fyrir að standa á mínu og láta engan traðka á mér og þegar Þrándur tjáði mér að ég hriti eins og versta hross, þá varð ég ekki sú sáttasta, ég þverneitaði, allt kom fyrir ekki og í sumarhúsinu um síðastliðna helgi lagði ég mig á föstudagskvöldinu, Þrándur sat í makindum sínum inní í stofu þegar hann heyrði óhljóð frá anddyrinu, hann taldi að veðurguðirnir væri eithvað að þenja sig, enn nei var etta ekki bara skvísan sjálf, prinsessan á bauninni, í essinu sínu, hann greip í símann sinn og festi essi óhljóð á myndband, um leið og ég rumskaði skaust hann inní herbergið í ofsakasti og sýndi mér framá að ég væri ekki svo saklaus, ég hryti eins og ég fengi borgað fyrir það-og ef ég voga mér að pikka í hann eða þenja mig yfir hrotunum í honum þá nebbnir hann alltaf sönnunargögnin sem hann hefur á mig-jámm Dedda litla prinsessa hrýtur.
Enn að allt öðru Elli góðvinur Þrándar á kisu sem var að gjóta einhverjum haug af ketlingum og fáum við að halda einum-tíhí, það vantar unga á heimilið og etta góð upphitun og forskot á sælununa-tíhí.
Fuglaflensa greinist í fuglum á Borgundarhólmi
Fuglaflensuveira af gerðinni H5 hefur greinst í dauðum svönum, sem fundust á dönsku eyjunni Borgundarhólmi. Ekki er ljóst hvort um er að ræða H5N1 afbrigði veirunnar, sem getur borist í menn, en það er þó talið líklegt. Rannsóknir á dauðum músváki, sem fannst í nágrenni Næstved á Sjálandi fyrir nokkru, leiddu í ljós að hann hafði drepist af völdum H5N1 fuglaflensuveiru, það má lesa nánar um fréttina á www.mbl.is og svo var annað sem vakti áhuga minn það eru Franskir námsmenn hvattir til mótmæla í kvöld
Félög franskra mennta- og háskólanema hafa hvatt námsmenn til að fjölmenna í mótmælasamkomur í borgum og bæjum landsins í kvöld til að mótmæla fyrirhugaðri lagasetningu um breytingar á atvinnulöggjöf landsins. Mér fynnst til skammar hvernig er komið fram við ungmennin sem eiga að vera framtíð landsins og eiga að byggja velferð á hverju? Skv. þessari lagasetningu er engin misskun sýnd og vanvirðing við ungmennin sem eiga að halda landinu og þjóðinni í raun og veru uppi næstu áratugina, skamm skamm og sveiattan, þetta er til skammar.
Vorum að fá nýtt skjákort og trubblaðanettenginu svo ég er farin að vafra um netið og japla á ávöxtum-tíhí, ójá Taggart í kvöld guð forði mér frá því að missa af því, knus knus.
+copy.jpg)

2 Comments:
beta mín það er um að gera að fá sér einn lítinn sætan kettling. og að þú hrjótir neibbbbbbb :) mín svona að hjálpa sinni. Og endilega horfa á Taggart hann er góður
kveðja mamma
jámm, maður verður að standa með litlu stelpunni sinni, þú verður að passa þig á að sobbna ekki of snemma, möst að fylgjast með tímatökunni í Formúlu 1-tíhí, Þrándur getur gert endalaust grín að því hvað ég vaki yfir formúlunni enn viti samt ekki baun í bala um hana-tíhí, er að fara að vinna eftir 9 tíma enn get samt ekki fengið mig til að sobbna, ligg andvaka yfir imbannum, með stýrurnar í augunum og augun þrotin af svefnvana skorti enn hvað get ég gert ég er fíkill-tíhí.
Skrifa ummæli
<< Home