Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, mars 27, 2006

Fiðrildi heita á latínu Lepidoptera

Ég hef alltaf verið skotin í firðrildum, veik fyrir vængjunum og hvernig þau lifa í gróðrinum í heillangan tíma og á endanum springa þau út, taka hamskipti frá því að vera litla ljóta lifran í bjútífúl firðildi, málið er það að ég nebbni fiðrildi þar sem ég sit nú í makindum mínum með eitt stykki fiðrildi í maganum, tilhlökkun í frí og að losna frá öllu stressinu sem fylgir því að búa í borginni. Ég velti mér á alla kanta í nótt og var svefnvana eins og lítið barn að taka tennur, langaði svo að pikka í hann Þránd minn og halda honum andvaka með mér enn fannst það sjálfselskt af mér svo ég sleppti því TÍHÍ.

Annað sem ég vildi koma inná eru spékoppar, öll dreymdum við um að hafa spékoppa þegar við vorum á uppvaxtarárum, fettum okkur og brettum og gerðum hinar ýmsu kúnstir með andlitinu, enn er það í rauninni það sem við viljum, hver segjir að maður þurfi að hafa spékoppa til að vera krúttlegur, ég efast um að það sé gaman að láta klípa sig allan og að vera knúsaður það fast að allir öndunarvegir stíbblast TÍHÍ kanski er ég bara afbrýðissöm því ég var ein þeirra sem gaf ekki upp vonina á að fá krúttlega koppa á kinnarnar?

Var að velta vöngum mínum yfir því og láta hugann reyka hvað fær karlmenn til þess að geta einungis einbeitt sér að einum hlut í einu, huum, nei þeir eru ekki allir solleiðis hugsaði ég ekki hann Þrándur minn allavega, í því hringir síminn hjá mér, það er Þrándur og hefur hann gleymt lyklunum að íbúðinni sem hann er að mála heima og var komin eins langt og augað leiðir þegar hann þurfti að snúa við, þá hugsaði ég með mér þetta myndi ekki henta mig, það er sömu sögu að segja þegar hann er í tölvunni, þá reynist erfiðara fyrir mig að ná sambandi við hann enn geimfara í 300ljósára fjarlægð TÍHÍ, enn hver hefur sína kosti og hver hefur sína galla TÍHÍ.

Flugvél Loftleiða Icelandic í 20 daga lúxusferð kringum hnöttinn er ég búin að missa vitið, þegar ég sá þessa fyrirsögn á www.mbl.is í mínum daglega rúnt þá var mér allri lokið.

Þar sem ég sit núna heima í il sötrandi á kaffi og volgri appelsínu frá því í gærkvöldi þá er mér hugsað til þessa Tvennt lést og 45 slösuðust í sprengingu í vopnageymslu í Afganistan GUÐ hvað ég er fegin að vera lítil stelpuhnota frá Íslandi enn ekki frá einhverju óeyrðalandi, við gerum okkur góðir hálsar og landmenn ekki fulla greyn fyrir því hvað við búum vel og erum heppin að vera stödd þar sem við erum í dag óhullt og án ógnar við árásir æðri landa. Farin að vafra um netið Knus Knus Dedda Litla Prinsessa.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

alltaf jafn góður penni Beta mín :O) Hvernig var annars um helgina... Luv Sunster

11:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

vááááá hvað þú ert orðin menningaleg lingur :o) gaman að þessu ...!

3:49 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home