Fréttir af Deddu Litlu Prinsessu
jámm góðir hálsar ég hef ákveðið að koma mér upp sonna skilaboðaskjóðu héddna mun ég skrifa hugsanr mínar og vangaveltur. Það er frekar rólegt hjá mér núna etta líf, er að reyna að komast í gegnum námið mitt sem er ekkert svo strembið ef því er sýnt smá áhuga enn hann er ekki sjálfgefinn hann krefst sjálfsaga sem langt er oft að sækja í enn ég tel mig hafa fundið hann FÆNALLÍ. Ég og Þrándur erum að fara í Rómantíska ferð í sveitasæluna um næstu helgi, leið okkar liggur norður með Skagaströnd í átt að Varmahlíð, þar munum við turtildúfurnar eyða þremur yndislegum dögum í sumarbústað sem foreldrar mínir voru svo yndisleg að færa okkur á silfurfati. Þetta er alveg fullkomið tækifæri til að rækta sálina og hreinsa hugann, næsti mánuður verður annasamur þá verð ég nebblilega kynnt fyrir tengdó, jámm þau eru búsett í KÖBEN svo ég hef ekki áður séð þau í eigin persónu enn ég mun ná að kynnast þeim vel því þetta verður ekki stutt stopp hjá þeim því þau munu nebblilega dvelja í REYKJAVÍK í heilan mánuð.
Enn að þessari ferð í kósí bústað ég ætla sko að búa við algjöran lúxus ætla að tralla upp í sveit með honum Þrándi mínum í lopapeysunni minni sem amma gaf mér og í kuldaskónum og munum við skötuhjúin renna af stað árla föstudags í kuldaskónnum burrrrrr og með gímítöfflurnar í farteskinu TÍHÍ, og slaka á í sveita sælunni í heitum potti með handfylli af góðgæti og dýrindis grillmat hver veit nema Gúrmetsteik verði skellt á grillið MÅSKE.
Svo er það ekki frásögu færandi enn ég ætla samt að tilkynna ykkur hér með að Dedda Litla Prinsessa er bara að standa sig alveg hreint afbragðsvel essa dagana hún er í nammibindindi sem er að vekja mikla lukku og færa henni mikla ánægju og vonum við að framhaldið eigi ettir að verða eins að hún falli ekki í gröf MÖNNSINS, krossleggið fingur TÍHÍ.
Held ég fari að vafra um á netinu í dolítinn tíma þar til kallinn skundar heimleiðis í hádegismat, Dedda kveður að sinni.
+copy.jpg)

9 Comments:
Hæ Beta
Hæ aftur flott síða hjá þér. Hlakka til að fylgjast með henni
kveðja mamma :)
þessi ferð í bústað í Varmahlíð verður örugglega skemmtileg. margt skemmtilegt að sá og bara gaman að fara uppí sveit
kveðja mamma :)
glæsileg síða... :) og góða ferð og skemmtun í bústaðinum, jafnast ekkert á við helgi í kósýheitum!! :)
sæl ástin agalega fín síða : ) en viltu í guðana bænum ekki nota "tíhí" þetta er án efa það hommalegasta sem fundið hefur upp : ) en maður verður að fara að kíkja á ykkur skötuhjúin við tækifæri : )*kiss* *kiss*
glæsileg frammistaða með þessa síðu...keep up the good work og góða skemmtun í súmó um helgina :)
Sigurrós
Hæææ Dedda mín :) Mér finnst æðislegt að þú hafir stofnað þína eigin síðu og það verður gaman að fylgjast með ykkur Þrándi inná þessari glæsilegu heimasíðu ;)
Eeeeen ég er að koma til þín núna eftir 10.mín þannig að ég tala bara við þig þá ástin :) see ya
Hæ skvís.. til hamingju með nýju fínu síðuna ;) og skemmtu þér rosa vel í sumó með kallinum.. kveðja frá london.. Rita :)
hver í asskotanum fyrirgefið orðbragðið stendur fyrir essum kulda ég gat ekki annað enn fundið til með greyjið Þrándi þegar hann laggði leið sína í vinnuna í morgun með NY húuna sína og burrr svipinn yfir sér, ég panta hér með gott veður yfir alla næstu helgi og það er eins gott að veðurguðirnir séu að leggja við hlustir núna því ég bið ekki oft um mikið TÍHÍ.
Skrifa ummæli
<< Home