Detta mér allar dauðar lýs af höfði
Klór hefur víst mjög langan líftíma í háloftunum sem á víst að bæta gráu ofan á svart, tíhí, ég sit í ofvæni og bíð ettir að SigurRós renni í hlað, við ætlum að spíta í lóana, leggjast á eitt og haska þessum lærdómi af, það þýðir víst ekkert annað þegar prófin nálgast óðfluga.
Það virðist vera sama hversu mörg mjólkurkex ég háma í mig ég fæ ekki nóg af þeim, þau eru víst ávanabindandi, þau geta sótt víst í sig hef ég heyrt meiri fíkn enn nikótín, detta mér allar dauðar lýs af höfði, það hvíslaði líka því að mér lítill fugl að H2O sé álíka ávanabindandi og aðrir vímugjafar í drykkjarformi, tíhí, þá segji ég hér með stolt að ég sé H2O fíkill, tíhí.
Nú bindi ég mín kvæði í kross, verð að greiða úr flækjunni sem hefur myndast fyrir aftan hnakkann á mér, tíhí.
+copy.jpg)

5 Comments:
það er nú gott að vera H20 fíkill :)
beta ég skil ekki orðaforðann sem þú notar :O(
Er það nema von ég er svo spekingsleg-nei nei til að gera langa sögu stutta þá er ég að takast á við ansi krefjandi verkefni þessa dagana, er á fullu að reyna að komast í gegnum námsefnið svo ég geti tekið lokaprófið, svo kom ég aðeins inná það að ég er orðin háð kranavatni, hvort það sé að hinu góða eða slæma? hver veit, tíhí.
hæ...bara að sannað ég les bloggið þitt...mjög gaman...og kvitta fyrir mig. gott að e-r geta bloggað ;)
hei...ég sagði þetta...Sigurrós :)veit ekki af hverju kom bara anonymous said...?
Skrifa ummæli
<< Home