Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, maí 31, 2008

SJOPPÍNGSPRÍ

-Frá því fyrir klukkan tíu í morgun erum við mamma og Steinar Máni búin að vera að versla í Kringlunni og Holtagörðum og er ég að taka uppúr öllum pokunum endalst af fötum, mat og hinu og þessu bara gaman.

-Skrifa meira seinna, er farin að undirbúa kvöldmatinn og taka aðeins til.

KLem

fimmtudagur, maí 29, 2008

Blettataka og foreldrahús


Við Steinar Máni, Þrándur og ég Elísabet höfuð haft það notalegt í akkurat viku í dag, gist í Mávahlíðinni hjá m&p og hefur baðið verið hvað vinsælast við erum bara með sturtu heima og erum að vinna svo mikið bæði að við höfum ekkert komist í sundlaugarnar, enn Gígju frænka systir Dánda hefur verið dugleg að fara með Steinsa sem og Júlía stóra frænka og J.T. stóri frændi líka.

Í gærdag fór ég og amma með mér og Steinsi í blettatöku og voru teknir alls 8 fæðingarblettir og á ég bara að taka það rólega í rúmaviku, sem sé ekkert að gera neinar meiri háttar æfingingar og bannað að fara í bað bara snöggar sturtur sem er nú allt í góðu, svo nú er ég nánast fæðingarblettalaus án djóks nei nei það var alveg úr nægu að velja enn hann tók þá sem honum fannst skita mestu máli að fjarlægja til þess að fyrirbyggja frumubreytingar eða annað sortuæxli. Svo ég er sátt bara doldið aum hér og þar því þetta var svo vítt og dreyft tveir á sitthvorru hendinni, einn á bakinu einn hjá brjóstinu, annar hjá bringunni, annar á hálsinum og svo einn aftan á öðrum fætinum og einn sá síðasti niðri jú nó ver ætla ekkert frekar að fara útí það!!!!!!

Nú er ég búin að taka íbúðina hjá foreldrunum svona semí í gegn og er að fara með strákinn á eftir í pössun til Jóhönnu og svo síðasti vinnudagurinn í þessari allmiklu törn fyrir helgina:) veiii. Nei annars er mjög gott að komast eilítið út á meðal fólks byrjaði að vinna svona smá á kvöldin í byrjun febrúar s.l. hafði þá ekkert unnið neitt frá því í byrjun september 2006 svo þetta hefur tekið svolítið á að fara aftur á vinnumarkaðinn er svo vön að hangsa bara heima eða dunda mér eithvað, híhí.

Er að velta fyrir mér að labba útí Bakarameistaran og fá mér eithvað í gogginn tými bara ekki að vekja Steinsa hann er búinn að vera svo slappur, ég hef sjálf verið að fá eina og eina pest frá því í febrúar mars og hann alltaf fengið þær frá mér enn ég er svo hraust að ég verð ekkert rúmliggjandi verð bara slöpp kanski enn hristi alltaf af mér og verð ekkert meira enn það sem er bara gott mál.

Enn segji þetta gott í bili, klem Dedda Ekkert Svo Litla Prinsessa Lengur.

miðvikudagur, maí 21, 2008

Brjálað að gera

....hef engan tíma í blogg, svakalega mikið að gera í vinnunni....

pís át Betz.

mánudagur, maí 19, 2008

Nóg að gera


....:O) í kvöld er saumaklúbbur hjá múttu og ætlar hún að laða fram dýrindis gúllassúpu að hætti Ólafar/pabba eins og gerði garðinn frægan í ammælinu hjá St. tveimur. Þetta eru notaleg kvöld sem við konurnar mömmumegin í fjölsk. tökum okkur saman og hittumst og borðum saman ýmist á veitingarhúsum eða heima hjá e-h gestgjafanum sem tekur það að sér að elda ofan í okkur eða baka, svo sötrum við á kaffidreitil og tölum saman fram eftir kvöldi oftast langt til miðnættis snúum okkur svo heim og hlúum að fjölsk. meðlimunum okkar, híhí.

....:O) svo er ég að fara í litun og klippingu á eftir er að bíða eftir að verða sótt, ætlar að láta litla skæró(skæruliðan St. Mána) lúra fyrir utan í kerruvagninum sínum, hún Stína frænka niðri í Adidu hársnyrtistofunni er lang best svo er líka ekki amalegt að fá þetta á svona fjölsk.prís eins og menn segja, blikk blikk. ;) Enn rótin var orðin allsráðandi hafði ekki látaið hirða um hárið síðan í enda febrúar án djóks og þeir sem þekkja e-h til mín eilítið vita að það er ekki líkt mér vanalega lét ég varla líða þessar 3 vikur sem eru svona must líða vikur, híhí. Er að hugsa um heillitun e-h svona karamelluljóslitaðan og láta hárið safnast, láta bara særa aðeins af því og svo klippa toppin, stytta hann alveg um e-h góða 4 cm eða svo hann er orðinn massa þungur sko.

....:O)Síðan er það ekki kanski frásögufærandi enn ég er búin að vera með tiltektaræði eða Dándi kallinn sparkaði í rassgatið á mér er búin að ætla eða réttara sagt að vera á leiðinni að taka fataskápana á ganginum, í stofunni og stór aí svefnherberginu í gegn í alllangan tíma eða frá því í janúar þegar ég tók smá rassíu í þeim eða þá aðalega í svefnherberginu enn ég er með 1 svartan ruslapoka fullan af dóti sem á að fara uppá loft hjá Siggu ömmu og svo 3 litlar töskur stút fullar svoleiðis að það bókstaflegar gubbar hlutum útúr þeim og eru ofhlaðnar staflaðar hver á annarri!! ENN ÞAÐ MÁ MEÐ SANNI SEGJA AÐ NÚ LÍTUR ALLT ÚT EINS OG Í HINNI FÍNUSTU FATAVERSLUN. EKKI AMALEGT ÞAÐ!!

....:O) svo er júróvísión um helgina og ætlum vð fjölsk. jójó og fjölsk. amma og afi og Gulli St. (mamma og pabbi verða í sólinni á Spáni) að hittast og grilla eða epanta pizzur og horfa saman í Hlíðunum á öll herlegheitin, gaman gaman saman og get ég ekki beðið enda fráfallandi júróvísión fíkill hér á ferð.

Farin að taka saman vagninn og pakka niður bleygjum og pela, ce la vie. gott fólk.

föstudagur, maí 16, 2008

BellyDancer


Jeminn hvað vikan var fljót að líða....

Á döfinni er:
  • í hádeginu á morgun er fjölsk.dagur í Húsdýra og fjölsk.garðinum.
  • á sunnudaginn er bíókvöld.
  • á mánudaginn er saumaklúbbur hjá mömmu.
  • á þriðjudaginn er vinnukvöld.
  • á laugardeginum eftir það er Eurovision heima hjá ömmu og grill með stórfjölsk.
Ætla mér að taka það rólega í kvöld er búin að vera með flensuna og eins og svo oft áður kann ég ekki að slaka á og hef varla undan að viðra sængur, pússa spegla, þrífa þvott og hvaðeina!!

Er búin að ganga útí rigningunni útum allar trissur og ætla að lúra núna það sem eftir er kvöldsins þar sem Dándi er að vinna frameftir undir sæng, kúrandi með heitt te og hunang, bleiku andlitskæligrímuna mína, með blápokan hans Dánda hitaðan og vafinn inní þvottastykki á bakinu og liggj með tærnar framúr sófa í fullkominni leti og ekki má gleyma að setja á mig maska og fara í heita sturtu, gæti varla gerst betra:O)

Ætla að skreppa inn til litla unga herramannsins og tjékka á hvort hann sé sofnaður.

1000 billjón kossar og risa bangsa knúsar....Dedda Litla Prinsessa.

þriðjudagur, maí 13, 2008

Tannhirða og megrun


Jámm ég veit ég ætlaði að fara í fyrirhugaða megrun enn nei mín fór galvösk gangandi niðrí bakaríið á horninu og keypti 2 sætabrauð, snúð og e-h annað sælustykki og hamaði það í mig og stakk einum og einum bita uppi blessaða son minn og í samviskubiti mínu gekk ég af mér allt nammeríið með því að ganga niðrí Grasagarðinn og gefa brabra eða fuglunum restina af snúðnum, svo samviskubitið nagar mig ekki jafn illilega og ég bjóst við:O)

Er farin að rembast við að gera teygju og þolæfingar daglega heima enn eina slæma við það eru allar harðsperrurnar sem ég þarf að þola við á kvöldin þegar ég vil hafa það notalegt, dekstraði líka fullkomlega við mig í gærkvöldi með mestu tannhirðu sem fyrir fynnst sem og í morgun, munnskolslausn, colgate munnskol, tannburstun 3 vegis og tannþráðsbursta uppi sem niðri og svo aftur munnskol og er með klínasta munn sem fyrirfynnst örugglega í götunni:O) svo setti ég augnmaskagrímu inní frysti í gærkvöldi afþýddi svo rétt fyrir svefninn og svaf svo með hana á mér hálfa nóttina og dormaði svo illilega vel að ég get varla lýst því umh ég sveif á bleiku skýji ef svo er hægt að segja.

Pjé Ess: svo er ég líka komin með !!FACEBOOK!! eftir mikinn þrýsing frá kunningjum og vinum þá hef nælt mér í eitt slíkt sem og ótæknivæddi eiginmaðurinn minn hann Þrándur:O) híhí

100 kossar og knúsar

laugardagur, maí 10, 2008

Mangi Svangi


-Ég fór að taka eftir því uppá síðkastið að ég hef aðeins bætt á mig, orðin 64 kg. hef haldið mig í 60 kg undanfarið ár svo hef ákvað að hætta öllu eða öllu heldur minnka töluvert mikið nammiátið mitt, hreyfa mig daglega, hef farið allt frá 1 sinni til 3 sinnum á dag út að ganga í kröftugar og langar göngur og gert teygjuæfingar og farið í sjóðandi heitar sturtu og drkkuð mikið vatn og innbyrt mikið af hollum mat.

-Soddan nú er bara að standa við þetta ekki fara útaf beinu brautinni það er svo auðvelt að freystast á miðri leið....tíhí

lauma einni sætri mynd inn í leiðinni.
pjé ess: takk Ragnheiður og Eva Mjöll gaman að hittast með ykkur, spjalla og borða Indverksanmat:O) (gamlar vinkonur úr Skógarásnum).

föstudagur, maí 09, 2008

Enigga menigga


Ég held ég hafi náð að gera allt sem hugsanlega hægt er að gera í banka í einu trompi. Nei kanski ekki alveg enn ég náði á stuttu korterisstoppi að fá afhent nýtt debetkort, nýtt leyninúmer í þjónustubankanum, sækja um endurnýjun lyilorðs á kortinu mínu og sækja um einkabanka og nýjan auðkennislykil og má ekki gleyma að láta virkja hann. Kom heim með fullt af pappírum 60 þúsund kall í beinhörðum péníngum og easy up no.5 pampers bleygjur öll gegnblaut og strákurinn líka eftir þennan vota göngutúr. 

Ætla að bragða mér á rjúkandi kaffi úr Cappuccino snylldar vélinni okkar sem við fengum í brúðargjöf ofg horfa og leggjast yfir sky.news fréttir.

Svo vorum við Dándi næstum búin að skella okkur á Parísarferð í byrjun júní enn ákváðum að bíða framyfir sumarið svo við getum haft það ennþá meira notalegt, með drenginn okkar litla og rómantíkina í botni. Ótrúlegt hvað netsmellirnir koma á óvart nánast ódýrara flugið fram og til baka fyrir okkur fjölsk. 3 saman enn ein ferð í krónuna sem dugar ekki í vikumat:O)


fimmtudagur, maí 08, 2008

ALBUM


3 drenge-3 årtier- 3 liv 

Við Þrándur höfðum Album maraþon í gærkvöldi eða ölluheldur í gærnótt, Þrándur fékk senda heila seríu af þessum stórskemmtilegu, mikið dramatísku og bráðsnjöllu þáttum. 

Þættirnir eru byggðir á eins og greint var frá að ofan 3 fjölsk. 
  1. vinstri manni
  2. miðju manni
  3. hægri manni
Og dramatísku lífi þeirra, hvernig fjölsk. fléttast allar saman í stórum viðburðum mæli eindregið með þeim eru á jótnesku þannig að god dag verður dav enn maður kemst mjög fljótt inní þá.

Þetta er TV-serie af Hella Joof sem er alveg brillíjant kall sko. Lágum yfir þessum þáttum þar til allir fimm þættirnir voru búnir eða klukkan 5 í morgun án djóks.

Verðið að dánlóda þeim, fá þá senda eða e-h bara verðið sko.

Þetta getur hann:


Steinar Máni undrabarn, hver trúir því ekki stagt og stöðugt að þeir eigi undrabarn verladarinnar enn það á ég :O) 

  • hann getur sagt kaka, mamma, pabba, Bubbi Bubbi, deinarr o.m.fl. allt að koma hjá honum.
  • hann getur sett kubba nokkurnveginn saman og tekið þá svo í sundur.
  • hann getur gengið og klabbað lófunum samtímis.
  • hann getur sungið eða trallað með ipodinn hennar mömmu sinnar í eyranu.
  • hann getur farið sjálfur uppí sófa, upp stiga og uppá stóla.
  • hann getur hjálpað til við að klæða sig í og úr.
  • hann getur einbeitt sér að sjónvarpinu í alllangan tíma og nánast beðið um að fá að horfa á það með tjáningunni hann er ótrúlegur.
-ætla aðeins að koma inná það sem ég verð að standa í ströngu við í sumar er að byggja upp stærðfræðina hjá mér sem og enskukunnáttuna annars held ég að ég verði góð og komi sterk bara inn í hojeskolen í haust-

...Knúsar Beta sketa... (læt eina svona sæta mynd af krúslunni fylgja með í kaupbæti-THÍHÍ)


miðvikudagur, maí 07, 2008

www.m5.is

Ég er gjrösamlega orðin húkt af þessari blessaðri síðu er orðin margs fúsari og allvel að mér í verðbréfamiðlun og málum þótt ég segji sjálf frá.

Krúsli minn er með áá eða bágti á bossalingnum eð aöllu heldur alveg hjá lærunum og þarf að fá vist krem á það svæði og hann grét svo mikið að ég sver það að ég hélt ég færi að gráta hann er e-h svo lítill enn samt svo harður að sér þau stækka víst þessi blessuðu börn.

Ætla að halla mér klukkan líka orðin allmargt og vorum að koma að læknavaktinni með lillanum þar sem honum var úthlutað resevtí á þetta blessaða smyrsl sem bjargaði alveg restinni af kvöldinu og nóttinni.

-Knús knís og billjón trilljón skrilljón kossar-

Myndagallerí














                                                                                         
-Eithvað fyrir augað-
ætla að vera dugleg að setja inn myndir af gimsteininum mínum honum Steinari Mána við foreldrarnir erum svo montnir af honum, enda er hann alveg einstaklega fallegt barn. 

....Litli Vinur Lífið Kallar
Leiðir Okkar Skilja Í Dag 
Góðar Vættir Vaki Allar
Verndi Og Blessi Æ Þinn Hag..........










Hamingju sem


Ég er ótrúlega hamingjusöm þessa dagana, fullfrísk, með lítinn dreng, uppáhalds besta vinkona mín að flytja til Íslands í byrjun næsta mánaðar, ég á yndislegan mann og fullkomið heimili, flottan bíl og bestu vinkonur sem til eru.

Ég var að sækja um í H.R. ( Háskólanum í Reykjavík ) og er vonandi að byrja þar í haust og kemst hugsanlega inná 2 eða 3 önn skv. e-h yfirmanni deilda þar. Veiiiii, hlakka ógómikið til.

Er farin núna að sækja drenginn minn niður...FARVEL í bili.


mánudagur, maí 05, 2008

Djúpar Hugsanir

...ég er búin að vera að velta fyrir mér lífinu, hvað ég ætla að læra, hversu mörg börn ég ætla mér að eignast hvernig ég vil haga mínu lífi, hvort ég vilji passa uppá mataræðið og hreyfa mig reglulega eða hvernig þetta blessaða líf á að vera hjá mér og mínum, nú vonandi fer íbúðin okkar hérna litla kotið í Rauðalæknum að seljast og svo er S.M. farinn að aba allt upp eftir manni þannig að það er eins gott að bera orðin rétt fram og passa uppá allar beygingarnar :O)

Ég er komin á fullt í skólanum og styttist í útskrift bara vera þolinmóð er ekkert að flýta mér tek frekar færri fög í einu og næ ágætis einkunn frekar enn að taka fleiri fög og rétt slefa yfir þetta.

Steinar er komin aftur í sína gömlu rútínu: sbr.

a) vakna
b) borða 
c) tannbursta- og lýsi
d) út að lúlla á svölunum

hann var aðeins dottinn útúr þessu enn nú er allt við hið sama.

-Við Dándi áttum ótrúlega rómantíska helgi eða föstudag og laugardag, fór á Hótel Örk, drukkum fordrykki (óáfenga) kemur engum á óvart, borðuðum; karrírjómasúpu, fylltan kalkún og köku með ís svo rjúkandi heitt kaffi beint á eftir. Fórum í sund, saunu, löbbuðum yfir í Eden og fórum í Billijard, horfðum á sjónvarpið fórum í bað 2sinnum :O) Beta ofnotandi tíhí tíhí, keyrðum á Selfoss og fengum okkur hamborgara og nammi, fengum okkur ís keyrðum um Hverina í Hveragerði, keyrðum löngu leiðina heim þarna hjá Þingvöllum, svo enduðum við á sýningu hjá Stígi bróðir hans Þrándar í Fótografí á Skólavörðustígi sem heitir Óreiða mæli eindregið með henni enda náðum við að næla okkur í eina mynd :O)

Fengum okkur Quisno's og svo bara tjill, ég fór líka með gömlum vinnufélugum mínum og bestu stúlkum þeim Sigurrós, Margréti og Ritu að borða á Madonnu og það var bara gott. Er líka að fara á svipað reunion á föstudag þá hitti ég mínar uppeldisvinkonur Evu Mjöll og Ragnheiði úr Skógarásnum yfir dinner:O)

Ætla að fara að sinna ,,unga,,barninu mínu