Tannhirða og megrun

Jámm ég veit ég ætlaði að fara í fyrirhugaða megrun enn nei mín fór galvösk gangandi niðrí bakaríið á horninu og keypti 2 sætabrauð, snúð og e-h annað sælustykki og hamaði það í mig og stakk einum og einum bita uppi blessaða son minn og í samviskubiti mínu gekk ég af mér allt nammeríið með því að ganga niðrí Grasagarðinn og gefa brabra eða fuglunum restina af snúðnum, svo samviskubitið nagar mig ekki jafn illilega og ég bjóst við:O)
Er farin að rembast við að gera teygju og þolæfingar daglega heima enn eina slæma við það eru allar harðsperrurnar sem ég þarf að þola við á kvöldin þegar ég vil hafa það notalegt, dekstraði líka fullkomlega við mig í gærkvöldi með mestu tannhirðu sem fyrir fynnst sem og í morgun, munnskolslausn, colgate munnskol, tannburstun 3 vegis og tannþráðsbursta uppi sem niðri og svo aftur munnskol og er með klínasta munn sem fyrirfynnst örugglega í götunni:O) svo setti ég augnmaskagrímu inní frysti í gærkvöldi afþýddi svo rétt fyrir svefninn og svaf svo með hana á mér hálfa nóttina og dormaði svo illilega vel að ég get varla lýst því umh ég sveif á bleiku skýji ef svo er hægt að segja.
Pjé Ess: svo er ég líka komin með !!FACEBOOK!! eftir mikinn þrýsing frá kunningjum og vinum þá hef nælt mér í eitt slíkt sem og ótæknivæddi eiginmaðurinn minn hann Þrándur:O) híhí
100 kossar og knúsar
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home