Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, maí 05, 2008

Djúpar Hugsanir

...ég er búin að vera að velta fyrir mér lífinu, hvað ég ætla að læra, hversu mörg börn ég ætla mér að eignast hvernig ég vil haga mínu lífi, hvort ég vilji passa uppá mataræðið og hreyfa mig reglulega eða hvernig þetta blessaða líf á að vera hjá mér og mínum, nú vonandi fer íbúðin okkar hérna litla kotið í Rauðalæknum að seljast og svo er S.M. farinn að aba allt upp eftir manni þannig að það er eins gott að bera orðin rétt fram og passa uppá allar beygingarnar :O)

Ég er komin á fullt í skólanum og styttist í útskrift bara vera þolinmóð er ekkert að flýta mér tek frekar færri fög í einu og næ ágætis einkunn frekar enn að taka fleiri fög og rétt slefa yfir þetta.

Steinar er komin aftur í sína gömlu rútínu: sbr.

a) vakna
b) borða 
c) tannbursta- og lýsi
d) út að lúlla á svölunum

hann var aðeins dottinn útúr þessu enn nú er allt við hið sama.

-Við Dándi áttum ótrúlega rómantíska helgi eða föstudag og laugardag, fór á Hótel Örk, drukkum fordrykki (óáfenga) kemur engum á óvart, borðuðum; karrírjómasúpu, fylltan kalkún og köku með ís svo rjúkandi heitt kaffi beint á eftir. Fórum í sund, saunu, löbbuðum yfir í Eden og fórum í Billijard, horfðum á sjónvarpið fórum í bað 2sinnum :O) Beta ofnotandi tíhí tíhí, keyrðum á Selfoss og fengum okkur hamborgara og nammi, fengum okkur ís keyrðum um Hverina í Hveragerði, keyrðum löngu leiðina heim þarna hjá Þingvöllum, svo enduðum við á sýningu hjá Stígi bróðir hans Þrándar í Fótografí á Skólavörðustígi sem heitir Óreiða mæli eindregið með henni enda náðum við að næla okkur í eina mynd :O)

Fengum okkur Quisno's og svo bara tjill, ég fór líka með gömlum vinnufélugum mínum og bestu stúlkum þeim Sigurrós, Margréti og Ritu að borða á Madonnu og það var bara gott. Er líka að fara á svipað reunion á föstudag þá hitti ég mínar uppeldisvinkonur Evu Mjöll og Ragnheiði úr Skógarásnum yfir dinner:O)

Ætla að fara að sinna ,,unga,,barninu mínu

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home