Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, maí 09, 2008

Enigga menigga


Ég held ég hafi náð að gera allt sem hugsanlega hægt er að gera í banka í einu trompi. Nei kanski ekki alveg enn ég náði á stuttu korterisstoppi að fá afhent nýtt debetkort, nýtt leyninúmer í þjónustubankanum, sækja um endurnýjun lyilorðs á kortinu mínu og sækja um einkabanka og nýjan auðkennislykil og má ekki gleyma að láta virkja hann. Kom heim með fullt af pappírum 60 þúsund kall í beinhörðum péníngum og easy up no.5 pampers bleygjur öll gegnblaut og strákurinn líka eftir þennan vota göngutúr. 

Ætla að bragða mér á rjúkandi kaffi úr Cappuccino snylldar vélinni okkar sem við fengum í brúðargjöf ofg horfa og leggjast yfir sky.news fréttir.

Svo vorum við Dándi næstum búin að skella okkur á Parísarferð í byrjun júní enn ákváðum að bíða framyfir sumarið svo við getum haft það ennþá meira notalegt, með drenginn okkar litla og rómantíkina í botni. Ótrúlegt hvað netsmellirnir koma á óvart nánast ódýrara flugið fram og til baka fyrir okkur fjölsk. 3 saman enn ein ferð í krónuna sem dugar ekki í vikumat:O)


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home