Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, maí 19, 2008

Nóg að gera


....:O) í kvöld er saumaklúbbur hjá múttu og ætlar hún að laða fram dýrindis gúllassúpu að hætti Ólafar/pabba eins og gerði garðinn frægan í ammælinu hjá St. tveimur. Þetta eru notaleg kvöld sem við konurnar mömmumegin í fjölsk. tökum okkur saman og hittumst og borðum saman ýmist á veitingarhúsum eða heima hjá e-h gestgjafanum sem tekur það að sér að elda ofan í okkur eða baka, svo sötrum við á kaffidreitil og tölum saman fram eftir kvöldi oftast langt til miðnættis snúum okkur svo heim og hlúum að fjölsk. meðlimunum okkar, híhí.

....:O) svo er ég að fara í litun og klippingu á eftir er að bíða eftir að verða sótt, ætlar að láta litla skæró(skæruliðan St. Mána) lúra fyrir utan í kerruvagninum sínum, hún Stína frænka niðri í Adidu hársnyrtistofunni er lang best svo er líka ekki amalegt að fá þetta á svona fjölsk.prís eins og menn segja, blikk blikk. ;) Enn rótin var orðin allsráðandi hafði ekki látaið hirða um hárið síðan í enda febrúar án djóks og þeir sem þekkja e-h til mín eilítið vita að það er ekki líkt mér vanalega lét ég varla líða þessar 3 vikur sem eru svona must líða vikur, híhí. Er að hugsa um heillitun e-h svona karamelluljóslitaðan og láta hárið safnast, láta bara særa aðeins af því og svo klippa toppin, stytta hann alveg um e-h góða 4 cm eða svo hann er orðinn massa þungur sko.

....:O)Síðan er það ekki kanski frásögufærandi enn ég er búin að vera með tiltektaræði eða Dándi kallinn sparkaði í rassgatið á mér er búin að ætla eða réttara sagt að vera á leiðinni að taka fataskápana á ganginum, í stofunni og stór aí svefnherberginu í gegn í alllangan tíma eða frá því í janúar þegar ég tók smá rassíu í þeim eða þá aðalega í svefnherberginu enn ég er með 1 svartan ruslapoka fullan af dóti sem á að fara uppá loft hjá Siggu ömmu og svo 3 litlar töskur stút fullar svoleiðis að það bókstaflegar gubbar hlutum útúr þeim og eru ofhlaðnar staflaðar hver á annarri!! ENN ÞAÐ MÁ MEÐ SANNI SEGJA AÐ NÚ LÍTUR ALLT ÚT EINS OG Í HINNI FÍNUSTU FATAVERSLUN. EKKI AMALEGT ÞAÐ!!

....:O) svo er júróvísión um helgina og ætlum vð fjölsk. jójó og fjölsk. amma og afi og Gulli St. (mamma og pabbi verða í sólinni á Spáni) að hittast og grilla eða epanta pizzur og horfa saman í Hlíðunum á öll herlegheitin, gaman gaman saman og get ég ekki beðið enda fráfallandi júróvísión fíkill hér á ferð.

Farin að taka saman vagninn og pakka niður bleygjum og pela, ce la vie. gott fólk.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home