Blettataka og foreldrahús

Við Steinar Máni, Þrándur og ég Elísabet höfuð haft það notalegt í akkurat viku í dag, gist í Mávahlíðinni hjá m&p og hefur baðið verið hvað vinsælast við erum bara með sturtu heima og erum að vinna svo mikið bæði að við höfum ekkert komist í sundlaugarnar, enn Gígju frænka systir Dánda hefur verið dugleg að fara með Steinsa sem og Júlía stóra frænka og J.T. stóri frændi líka.
Í gærdag fór ég og amma með mér og Steinsi í blettatöku og voru teknir alls 8 fæðingarblettir og á ég bara að taka það rólega í rúmaviku, sem sé ekkert að gera neinar meiri háttar æfingingar og bannað að fara í bað bara snöggar sturtur sem er nú allt í góðu, svo nú er ég nánast fæðingarblettalaus án djóks nei nei það var alveg úr nægu að velja enn hann tók þá sem honum fannst skita mestu máli að fjarlægja til þess að fyrirbyggja frumubreytingar eða annað sortuæxli. Svo ég er sátt bara doldið aum hér og þar því þetta var svo vítt og dreyft tveir á sitthvorru hendinni, einn á bakinu einn hjá brjóstinu, annar hjá bringunni, annar á hálsinum og svo einn aftan á öðrum fætinum og einn sá síðasti niðri jú nó ver ætla ekkert frekar að fara útí það!!!!!!
Nú er ég búin að taka íbúðina hjá foreldrunum svona semí í gegn og er að fara með strákinn á eftir í pössun til Jóhönnu og svo síðasti vinnudagurinn í þessari allmiklu törn fyrir helgina:) veiii. Nei annars er mjög gott að komast eilítið út á meðal fólks byrjaði að vinna svona smá á kvöldin í byrjun febrúar s.l. hafði þá ekkert unnið neitt frá því í byrjun september 2006 svo þetta hefur tekið svolítið á að fara aftur á vinnumarkaðinn er svo vön að hangsa bara heima eða dunda mér eithvað, híhí.
Er að velta fyrir mér að labba útí Bakarameistaran og fá mér eithvað í gogginn tými bara ekki að vekja Steinsa hann er búinn að vera svo slappur, ég hef sjálf verið að fá eina og eina pest frá því í febrúar mars og hann alltaf fengið þær frá mér enn ég er svo hraust að ég verð ekkert rúmliggjandi verð bara slöpp kanski enn hristi alltaf af mér og verð ekkert meira enn það sem er bara gott mál.
Enn segji þetta gott í bili, klem Dedda Ekkert Svo Litla Prinsessa Lengur.
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home