Ljúfa Líf
jámm-það má segja að veðrið hafi leikið við okkur íslendinga undanfarna daga...ég er reyndar búin að gera lítið undanfanra daga eftir að Dándi minn kom heim annað enn að kúra og fara í bíltúra og jafla á ís ;o) við fórum í mat í gærkvöldi til m&p og borðuðum pasta a la Dóri, sem er hvítt pasta með rjómasósu, mosarella, beikoni og skínku-ummmh.
Við erum að fara að skipta út golfinum okkar og þræddum gjörsamlega allar bílasölur í gærdag, komum niður á einn all svakalegan bimma (BMW), við erum svo obboslega skotin í bimmum, ætli við endum ekki á einum...
Við sváfum út í morgun sem var gott til tilbreytingar, sáum eina mest spannandi mynd í gærkvöldi leygðum okkur Edison city og crime, sem er hörkuspennandi glæpasaga sem skartar engum örðum enn sjarmatröllinu Justin Timberlake í aðalhlutverki....Svo var Dándi að enda við að Dánlóda Prision Brake og sátum við sem stjörf fyrir framan tölvuna í hádeginu...
Nú er okkur ekki til setunnar boðið...það er ekkert annað enn að drífa sig út í góða veðrið og taka smá bíltúr...enda verða næstu helgar og dagar ansi annasamir hjá okkur skötuhjúunum...vinna-vinna og aftur vinna...ræktin....markaður í Kolaportinu þar sem ég verð ásamt 3 frænkum mínum að selja föt, skó, töskur og allskynsfylgihluti því guð veit að mér vantar skápapláss...svo er auðvitað Köbenferðin framundan...þar sem við Dándi ætlum að versla og slappa af hjá tengdó...svo verður heilsað uppá gamla vini og kunningja í bland við að fara á uppistand...Dándi sá auglýst uppistand þá helgi sem við verðum í Köben og ætlar að fá Tryggva til að redda okkur góðum miðum í tæka tíð áður enn allt verður uppselt því þetta eru víst mjög vel sótt....
Svo má ekki gleyma málsverði á Horninu í kvöld með tengdó og systir Dánda og mági hans....ummh hef heyrt mikið lof um þann stað...
+copy.jpg)

1 Comments:
hæ skotta ! Á ekkert að fara að láta vita af sér???? Lagar að fá eitt stykki blogg frá þér, það er svo langt síðan að ég hef heyrt frá þér.....skoppastu svo kanski á msn í leiðinni... sakna þín ekkert smá mikið !! Knús og kossar
Skrifa ummæli
<< Home