Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

laugardagur, maí 27, 2006

Allt & Ekkert

já það er búið að vera alveg trubblað að gera hjá mér svo ég hef haft ansi lítinn tíma til að skrifa niður hugrenningar mínar...enn hér kemur þó smá slatti;)

Við Dándi erum búin að vera á fullu að vinna, erum að sabbna smá klinki til að komast eithvað út í sólina í haust-jibbí, vinnum eins og meiníakar;) Dándi kom mér á óvart í gærkvöldi og mætti heim með lítinn 12 vikna kettling sem fékk nabbnið Skúli, valið stóð reyndar á milli Skúla eða Silvesters( Tweety & Silvester), það er ennþá óráðið og köllum við á hann á víxl báðum nöbbnunum svo það er harla ólíklegt að hann sé annað enn pínku áttaviltur greyjið;)

Við buðum m í mat í gærkvöldi og grillaði Dándi humar handa frúnni, lax, silung og ýsu á teini með grænmeti og ferskusalati og hvítlaukssósu, jammí;)

Í dag fórum við í stúdentsveislu hjá Steini, þar var boðið upp á tapas hlaðborð og eina trubblaða grænmetisböku og má með sanni segja að við höfum misst okkur í mönsinu-ummmh og gengum út sátt og pakksödd, svo er önnur veisla á morgun enn þá verður Gulli afi gamli 75 ár, meiri kökur og meira fjör.

Það styttist óðum í Köben, við leggjum af stað snemma föstudagsmorgunsins 2 júní og dveljum í 4 nætur eða 5 daga hjá tengdó, margt og mikið þarf að gera, ætlum meðal annars að skreppa í tívólíið, heilsa uppá gamla vini og kunningja, sjoppíngspríja á Strikinu, erum að velta okkur uppúr því hvort við eigum ekki að skella okkur á einn bílaleigubíl og skreppa yfir brúnna til Sverige, því De er brä i sverige;) eða svo hef ég heyrt!!

Enn sit spennt sem límd fyrir framan sjónvarpskassann og bíð eftir fyrstu tölum í sveitastjórnakosningunum í ofvæni;) ætla rétt að vona að þið hafið munað að kjósa RÉTT;) við Dándi fórum áðan að kjósa, og ræddum kosningarnar fram og til baka enda er það á allra vörum um þessar mundir hver mun taka við Borgarráði, ég segji bara blátt áfram XD ;)

knus knus Betz.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home