Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, október 31, 2006

Karma karma

what cose around comes around...það er að skila sér hvað ég var gott barn-karmað hefur slegið mig ég er að verða móðir-ég hef alltaf sagt það á eftir að koma sér vel í framtíðinni að hafa verið ekstra prútt og stillt barn jámm góðir hálsar innan 4 mánaða verð ég komin með barn í hendurnar ljúfasta gjöf sem ég get hugsað mér karmað lætur á sér kræla;o) vorum hjá ljósunni áðan og eigum fest á upptöku hjartslátt litla barnsins;*

Ég er svoleiðis pakksödd fórum í bakaríið og þar át ég gjörsamlega yfir mig, fór svo í kringluna og splæsti í einni bláberja skyr.is dós handa skúla og færði honum, liggur hann dauðþreyttur eftir amstur dagsins lúllandi hliðin á mér;)

Í gær fékk ég um 300 bls glósur útprentaðar frá honum föður mínum kæra svo dagurinn fer í lestur og aftur lestur...held ég haldi heim og hefjist þá handar því ekki væri seinna enn vænna!!

1000 kossar Beta lærdómsmeiníak

mánudagur, október 30, 2006

Skúli sáttur

...já fólkið á hæðinni fyrir neðan er víst bara hele famelien með bráðaofnæmi fyrir öllum dýrum þar með talið hömstrum og gullfiskum svo við neyddumst til að senda skúla frá okkur;(-enn góðu fréttirnar eru þær að hann er í vist hjá mömmsu & pabbsa og passa þau og Gulli st. vel uppá hann svo við getum alltaf fengið hann aftur til baka þegar við flytjum...það er líka gott að vita af honum í góðum höndum og við getum heimsótt hann hvernær sem er-til að mynda mun ég passa hann í 3 daga með þau fara til London svo mun hann eyða jólunum og svona með okkur sem er mjög huggulegt;) svo hann er enn í fjölsk. sem er bara fyrir öllu;o)

Í gær áttum við Dándi ársafmæli og fórum á ísrúnt og kíktum í egg þar sem miklar framkvæmdir standa yfir hjá okkur og næstu vikum!! Kíktum í kaffi á nesið til Gígju og Ara og fórum svo með Skúla í Mávahlíðina og fengum epla pæ og eggjaköku um kvöldið, hann svaf alla nóttina sem er mjög gott ég hringdi tvívegis um kvöldið með áhyggjur af elskunni minni enn hann er í góðum höndum, bestu höndunum;)

Dándi er veikur heima, ég fór að kaupa bakkelsi og brauð í bakaríinu handa veika kallinum og kíkja á Skúla í leiðinni;)

Það styttist í prófin svo ég verð að fara að bretta hendur fram úr ermum svo eru tvær lokaritgerðir frekar strembnar báðar í þarnæstu viku;/ enn það er bara að krossleggja fingur og treysta á sjálfstraustið, Beta þú getur þetta:)

Við erum að spá í að fara í þrívíddarsónar í kringum 6 mánuð og bíðum spennt þetta er alveg hreint ótrúleg tækni sem komin er, þá fáum við í hendurnar diskling með upptökum og sjáum fjórvíðar hreyfingar.

Á miðvikudag er ég og Gulli St. að fara með skúla í tjipp, seinni sprautuna og í geldingu greyjið á eftir að vera eftir sig;/

Við erum búin að fynna draumasturtuna eftir mikla leit er hún fundin fórum á laugardaginn uppí hafnarfjörð í verslunina sturta.is og fundum eina með nuddi, gufu, setu, radió og bara alle sammen klabben;) það verður ljúft þegar hún verður komin vonandi náum við að koma henni upp fyrir jólin og flísaleggja baðið það væri algjör draumur í dós;)

Er farin að kítla bragðlaukana knus & kram Beta;)

fimmtudagur, október 26, 2006

Et barn bliver til

;o) við fórum í 20 vikna sónar í fyrradag, barnið okkar er búið að stækka svo mikið, ég get varla með orðum líst hvað ég er farin að hlakka til að fá barnið í heiminn...

Jólin nálgast og er ég nú þegar búin að splæsa í einni gjöf handa gamla settinu (mömmsu & pabbsa), svo erum við að fara útí framkvmædir sem fyrirhugaðar eru fyrir jól ;* og bíð ég í ofvæni, farin að lesa sigur í samkeppni, og taka úr þvottavélinni

Knus & Kram Betz

þriðjudagur, október 24, 2006

Mukket bra

við erum búin að hlæja okkur máttlaus hvað eftir annað yfir sænsku grínmyndinni Jalla Jalla svo fundum við á falinni videósölubúð sjálfstætt framhald af myndinni enn ber hún nafnið Kopps sem er að mínu mati bara ennþá fyndnari, mæli með að enginn sannur grínáhugamaður láti þessar tvær myndir framhjá sér fara, vildi nota tækifærið og óska Halldóru & Antoni til hamingju með litlu prinsessuna sína sem er rúmlega viku gömul;)

Knus & Kram frá okkur

Nú blessuð blíðan...

Í dag er 24. október...mér þykir það hreint með ólikindum hvað tíminn flýgur frá manni, eftir 5 daga já aðeins 5 daga verð ég og Dándi búin að vera saman í heilt ár;o)

Í morgun fórum við í 20 vikna sónar og kom allt mjög vel út, nú er bara að gera allt klárt og bíðum við spennt eftir frumburðinum okkar;* litli anginn sparkaði fótum og sveiflaði höndunum og geispaði til skiptis, enn er fullkomlega 100% heilbrigt barn og það er fyrir öllu, við ákvaðum að láta kynið ráðast við fæðingu og bíðum því spennt enn ljósan okkar missti .það hálfpartinn útúr sér hvort kynið við göngum með svo við erum svona 70% sjor á því;)

Ég er skráð í 15 einingar eða 5 áfanga í versló þessa önnina þarf að taka hana með trompi og ná 75% námi ég er í markaðsfræði, sigur í samkeppni, íslensku, tölfræðinni, sögu og náttúrufræði

Nú er bara að bretta hendur fram úr ermum og leggjast yfir volgan tebolla og lærdómslesturinn, mammsa og pabbsi voru svo yndisleg að prenta út allar glærur og binda fyrir mig svo það ætti að létta töluvert undir heimalærdóminn...

Við Dándi erum að fara út í gríðamiklar framkvæmdir í Rauðalæknum ætlum að parket og flísaleggja, breyta baði og eldhúsi, ætlum að fá okkur draumasturtu með setubaðkari, gufu, nuddi, útvarpi og alle græjes, splæsa í nýjan sófa erum búin nú þegar að næla okkur í flatskjá, mála íbúðina, kaupa borðstofuborð stóla, ný ljós og gera kósí fyrir litla barnið litla angann að koma í heiminn, fékk nýja dagsetningu í dag 13. mars, annasr kemur það bara þegar það er tilbúið það hef ég alltaf sagt þegar ég er spurð hvenær ég sé sett...

...knus og kram til allra og vá hvað það styttist í jólin;)

fimmtudagur, október 12, 2006

Íslensk-Íslensk orðabók

Nautnaseggur: ef íslenska orðið nautnaseggur væri skilgreint í orðabók myndi tvímælalaust koma ein stór mynd af mér;o)

Þarftu að spyrja af hverju??

að besta sem ég geri er að koma við á morgnanna hjá mömmu og pabba og narta í matinn úr ísskápnum vonandi eldist þetta af mér, ég gæti verið hérna í allan dag, allir annaðhvort í vinnunni eða í skólanum, mamma var að byrja að vinna hjá Arion sem er dótturfyrirtæki KB-Banka þar sér hún um erlend viðskipti, fyrsti dagurinn hennar var í gær, hún var alveg í skýjunum hringdi í mig eftir að hafa farið útað borða í hádeginu á vegamótum með vinnufélugunum mammsa er greynilega að gera góða hluti þarna og koma vel fyrir það er ekki við öðru að búast af skvísunni;o) eða á ég að segja konunni hún er orðin svo glæsileg þið ættuð að sjá hana í dressinu sínu uppá búna og vel strílaða;o)

Knus Knus Beta

Mikið að gera pípol mikið að gera

...jámm dagarnir hjá henni Betu eru búnir að vera annasamir-helgin var skipuð þannig; á föstudagsmorgun eða réttum kaffileyti litum við Dándi í kaffi og meðþví til mömmsu hún var að hjálpa okkur að fara yfir nokkra pappíra, á laugardaginn var hangikjöt og tilheyrandi hjá Mömmu og tjatt frameftir kvöldi, svo var bara leygt dvd myndir og slæpst eftir það;*

Á sunnudaginn fórum við í mat læri læri tækifæri til Ara & Gígju, fórum svo heim uppí hjónarúm og horfðum á Efter Bryllupet...

Nú sækir í harðann því það styttist óþfluga í prófin, ég skráði mig í náttúrufræði, markaðsfræði, ensku, íslensku og tölfræði svo nú er að standa sig og bretta upp ermar;o) Beta þú getur þetta, á fimmtudaginn síðasta kom Gulli Steinar og mammsa í mat og pabbi kíkti seinna um kvöldið í kaffi, eldaði ég þriggja rétta máltíð, kjútlíngasalat með kúskús indverskri sósu, eldglóðaðan fylltan kjútlíng í chöttneysósu, steiktar míní kartöflur og ferskt salat, svo var hellt upp á þrístikönnuna og fyllt á nýju Arne Jakobsen könnuna frá tengdó...

Dándi á þvílíkt e-h voða voða B&O (Bang & Olufsen) tíví úti ég get vel séð það fyrir mér í stofunni eftir að við breytum erum að huga að fara útí framkvæmdir leggja parket og flísar fyrir jól, taka baðherbergið í gegn og svo eftir jól ráðast á eldhúsið og borðstofuna, er búin að fynna með hjálp S.O.S. mömmsu alveg hreint trubblað borð í Sænsku verzluninni Ikea sem ég sé vel fyrir mér í borðkróknum, svo sáum við geðveika stóla stílhreina leðuráklæði með silfruðum snúningsfæti í Húsgagnahöllinn á 12000 kall stykkið ég sé alveg svoleiðis 6 stóla í kringum borðið!!

Nú er bara að byrja að spara og hagræða matarinnkaupum-tíhí, svo maður geti farið að taka hýbýlið í gegn fyrir navidad,,jólin,,...

Knús og endalaust kram

laugardagur, október 07, 2006

Nautnaseggur

...hvaða snillingur fann upp súkkulaðið, sá hinns ami hefur unnið sér inn stig hjá mér;)

Mangi svangi

Það er alveg hreint með ólíkindum hvað það er gott að koma í mat til mömmsu & pabbsa á laugardaginn fyrir akkurat viku síðan þá sóttu m&p mig og Dánda útá völl og svo á sunnudaginn fórum við í kjúllarétt a la mamma, í kvöld verður e-h gúrme matarkyns hjá þeim svo á morgun verður matur hjá Gígju og Ara, það er ekki laust við en að maður geti minnkað matarinnkaupinn þegar maður er svona vinsæll matargestur þessa dagana;o)

Í gær var kósí kvöld, Dándi hefur verið að vinna svo mikið undanfarið, í gær var tær afslöppun hann hætti um hádegisbilið að vinna kom í kaffi til mömmsu og spjall, svo fór ég að verzla jólagjöfina handa mömmsu og pabbsa, keypti í matinn, svo var bara japlað á humarsúpu og speltbrauði með kallinum og horft á X-Men og stock on you!!

Kláruðum að horfa á síðari myndina í morgun og er þetta mynd sem ég mæli eindregið með;*

Jæja ætla að skila pabbsa tölvunni er búin að einoka hana alltof lengi, enn bloggleysið undanfarið hefur stafað að því að ég hef ekki verið nettengd um nokkurt skeið enn því verður kippt í lag strax eftir helgi.

Já Anna mín bumban er orðin enn stærri núna ef þú bara vissir-tíhí, ég missti mig í H&M í fields og keypti fulla flugfreyjutösku af barnadóti og meira til, nú er bara beðið spennt eftir að litli unginn láti sjá sig, fann fyrstu hreyfingarnar í síðustu viku;) svo þetta er allt að koma. Ég get sent þér og Sunnu út myndskilaboð þar sem þið getið fengið að hlusta á hjartsláttinn í unganum ég tók hann upp á miðvikudaginn í síðustu skoðun.

Knus & Kram Betz;)

miðvikudagur, október 04, 2006

Komin heim á þennan blessaða klaka...

ferðin út gekk alveg hreint frábærlega, fórum á fjöldan allan af söfnum, görðum, átum á okkur matargat, grilluðum, tókum einn tiltektardag, þrömmuðum um í góðviðrinu, grilluðum á stöndinni, fengum Hildi og Halldór í heimsókn og hvað gerðum við ekki af okkur;)

Ég er búin að vera á fullu undanfarna daga er hætt að vinna og er að einbeita mér að náminu, strembið tímabil framundan, svo er alveg hreint með ólíkindum hvað það styttist óþfluga í jólin, þetta verða fyrstu jólin okkar Dánda í raun og veru saman, verðum í góðu yfirlæti hjá mömmsu & pabbsa, knus og kram til þeirra og þakkir fyrir að sækja okkur og skutla úteftir á völlinn;*

kærlig hilsen til allra minna ástkærustu;) Betz námsglaða