Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

miðvikudagur, október 04, 2006

Komin heim á þennan blessaða klaka...

ferðin út gekk alveg hreint frábærlega, fórum á fjöldan allan af söfnum, görðum, átum á okkur matargat, grilluðum, tókum einn tiltektardag, þrömmuðum um í góðviðrinu, grilluðum á stöndinni, fengum Hildi og Halldór í heimsókn og hvað gerðum við ekki af okkur;)

Ég er búin að vera á fullu undanfarna daga er hætt að vinna og er að einbeita mér að náminu, strembið tímabil framundan, svo er alveg hreint með ólíkindum hvað það styttist óþfluga í jólin, þetta verða fyrstu jólin okkar Dánda í raun og veru saman, verðum í góðu yfirlæti hjá mömmsu & pabbsa, knus og kram til þeirra og þakkir fyrir að sækja okkur og skutla úteftir á völlinn;*

kærlig hilsen til allra minna ástkærustu;) Betz námsglaða

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

velkomin heim sæta! þú greinilega skemmtir þér mjög vel út, enda datt mér ekki annað í hug :)

2:37 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að sjá ykkur þarna á Kastrup=) Og vá hvað bumban er myndarleg=)

3:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home