Mikið að gera pípol mikið að gera
...jámm dagarnir hjá henni Betu eru búnir að vera annasamir-helgin var skipuð þannig; á föstudagsmorgun eða réttum kaffileyti litum við Dándi í kaffi og meðþví til mömmsu hún var að hjálpa okkur að fara yfir nokkra pappíra, á laugardaginn var hangikjöt og tilheyrandi hjá Mömmu og tjatt frameftir kvöldi, svo var bara leygt dvd myndir og slæpst eftir það;*
Á sunnudaginn fórum við í mat læri læri tækifæri til Ara & Gígju, fórum svo heim uppí hjónarúm og horfðum á Efter Bryllupet...
Nú sækir í harðann því það styttist óþfluga í prófin, ég skráði mig í náttúrufræði, markaðsfræði, ensku, íslensku og tölfræði svo nú er að standa sig og bretta upp ermar;o) Beta þú getur þetta, á fimmtudaginn síðasta kom Gulli Steinar og mammsa í mat og pabbi kíkti seinna um kvöldið í kaffi, eldaði ég þriggja rétta máltíð, kjútlíngasalat með kúskús indverskri sósu, eldglóðaðan fylltan kjútlíng í chöttneysósu, steiktar míní kartöflur og ferskt salat, svo var hellt upp á þrístikönnuna og fyllt á nýju Arne Jakobsen könnuna frá tengdó...
Dándi á þvílíkt e-h voða voða B&O (Bang & Olufsen) tíví úti ég get vel séð það fyrir mér í stofunni eftir að við breytum erum að huga að fara útí framkvæmdir leggja parket og flísar fyrir jól, taka baðherbergið í gegn og svo eftir jól ráðast á eldhúsið og borðstofuna, er búin að fynna með hjálp S.O.S. mömmsu alveg hreint trubblað borð í Sænsku verzluninni Ikea sem ég sé vel fyrir mér í borðkróknum, svo sáum við geðveika stóla stílhreina leðuráklæði með silfruðum snúningsfæti í Húsgagnahöllinn á 12000 kall stykkið ég sé alveg svoleiðis 6 stóla í kringum borðið!!
Nú er bara að byrja að spara og hagræða matarinnkaupum-tíhí, svo maður geti farið að taka hýbýlið í gegn fyrir navidad,,jólin,,...
Knús og endalaust kram
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home