Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, október 30, 2006

Skúli sáttur

...já fólkið á hæðinni fyrir neðan er víst bara hele famelien með bráðaofnæmi fyrir öllum dýrum þar með talið hömstrum og gullfiskum svo við neyddumst til að senda skúla frá okkur;(-enn góðu fréttirnar eru þær að hann er í vist hjá mömmsu & pabbsa og passa þau og Gulli st. vel uppá hann svo við getum alltaf fengið hann aftur til baka þegar við flytjum...það er líka gott að vita af honum í góðum höndum og við getum heimsótt hann hvernær sem er-til að mynda mun ég passa hann í 3 daga með þau fara til London svo mun hann eyða jólunum og svona með okkur sem er mjög huggulegt;) svo hann er enn í fjölsk. sem er bara fyrir öllu;o)

Í gær áttum við Dándi ársafmæli og fórum á ísrúnt og kíktum í egg þar sem miklar framkvæmdir standa yfir hjá okkur og næstu vikum!! Kíktum í kaffi á nesið til Gígju og Ara og fórum svo með Skúla í Mávahlíðina og fengum epla pæ og eggjaköku um kvöldið, hann svaf alla nóttina sem er mjög gott ég hringdi tvívegis um kvöldið með áhyggjur af elskunni minni enn hann er í góðum höndum, bestu höndunum;)

Dándi er veikur heima, ég fór að kaupa bakkelsi og brauð í bakaríinu handa veika kallinum og kíkja á Skúla í leiðinni;)

Það styttist í prófin svo ég verð að fara að bretta hendur fram úr ermum svo eru tvær lokaritgerðir frekar strembnar báðar í þarnæstu viku;/ enn það er bara að krossleggja fingur og treysta á sjálfstraustið, Beta þú getur þetta:)

Við erum að spá í að fara í þrívíddarsónar í kringum 6 mánuð og bíðum spennt þetta er alveg hreint ótrúleg tækni sem komin er, þá fáum við í hendurnar diskling með upptökum og sjáum fjórvíðar hreyfingar.

Á miðvikudag er ég og Gulli St. að fara með skúla í tjipp, seinni sprautuna og í geldingu greyjið á eftir að vera eftir sig;/

Við erum búin að fynna draumasturtuna eftir mikla leit er hún fundin fórum á laugardaginn uppí hafnarfjörð í verslunina sturta.is og fundum eina með nuddi, gufu, setu, radió og bara alle sammen klabben;) það verður ljúft þegar hún verður komin vonandi náum við að koma henni upp fyrir jólin og flísaleggja baðið það væri algjör draumur í dós;)

Er farin að kítla bragðlaukana knus & kram Beta;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home