Mangi svangi
Það er alveg hreint með ólíkindum hvað það er gott að koma í mat til mömmsu & pabbsa á laugardaginn fyrir akkurat viku síðan þá sóttu m&p mig og Dánda útá völl og svo á sunnudaginn fórum við í kjúllarétt a la mamma, í kvöld verður e-h gúrme matarkyns hjá þeim svo á morgun verður matur hjá Gígju og Ara, það er ekki laust við en að maður geti minnkað matarinnkaupinn þegar maður er svona vinsæll matargestur þessa dagana;o)
Í gær var kósí kvöld, Dándi hefur verið að vinna svo mikið undanfarið, í gær var tær afslöppun hann hætti um hádegisbilið að vinna kom í kaffi til mömmsu og spjall, svo fór ég að verzla jólagjöfina handa mömmsu og pabbsa, keypti í matinn, svo var bara japlað á humarsúpu og speltbrauði með kallinum og horft á X-Men og stock on you!!
Kláruðum að horfa á síðari myndina í morgun og er þetta mynd sem ég mæli eindregið með;*
Jæja ætla að skila pabbsa tölvunni er búin að einoka hana alltof lengi, enn bloggleysið undanfarið hefur stafað að því að ég hef ekki verið nettengd um nokkurt skeið enn því verður kippt í lag strax eftir helgi.
Já Anna mín bumban er orðin enn stærri núna ef þú bara vissir-tíhí, ég missti mig í H&M í fields og keypti fulla flugfreyjutösku af barnadóti og meira til, nú er bara beðið spennt eftir að litli unginn láti sjá sig, fann fyrstu hreyfingarnar í síðustu viku;) svo þetta er allt að koma. Ég get sent þér og Sunnu út myndskilaboð þar sem þið getið fengið að hlusta á hjartsláttinn í unganum ég tók hann upp á miðvikudaginn í síðustu skoðun.
Knus & Kram Betz;)
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home