Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, október 24, 2006

Nú blessuð blíðan...

Í dag er 24. október...mér þykir það hreint með ólikindum hvað tíminn flýgur frá manni, eftir 5 daga já aðeins 5 daga verð ég og Dándi búin að vera saman í heilt ár;o)

Í morgun fórum við í 20 vikna sónar og kom allt mjög vel út, nú er bara að gera allt klárt og bíðum við spennt eftir frumburðinum okkar;* litli anginn sparkaði fótum og sveiflaði höndunum og geispaði til skiptis, enn er fullkomlega 100% heilbrigt barn og það er fyrir öllu, við ákvaðum að láta kynið ráðast við fæðingu og bíðum því spennt enn ljósan okkar missti .það hálfpartinn útúr sér hvort kynið við göngum með svo við erum svona 70% sjor á því;)

Ég er skráð í 15 einingar eða 5 áfanga í versló þessa önnina þarf að taka hana með trompi og ná 75% námi ég er í markaðsfræði, sigur í samkeppni, íslensku, tölfræðinni, sögu og náttúrufræði

Nú er bara að bretta hendur fram úr ermum og leggjast yfir volgan tebolla og lærdómslesturinn, mammsa og pabbsi voru svo yndisleg að prenta út allar glærur og binda fyrir mig svo það ætti að létta töluvert undir heimalærdóminn...

Við Dándi erum að fara út í gríðamiklar framkvæmdir í Rauðalæknum ætlum að parket og flísaleggja, breyta baði og eldhúsi, ætlum að fá okkur draumasturtu með setubaðkari, gufu, nuddi, útvarpi og alle græjes, splæsa í nýjan sófa erum búin nú þegar að næla okkur í flatskjá, mála íbúðina, kaupa borðstofuborð stóla, ný ljós og gera kósí fyrir litla barnið litla angann að koma í heiminn, fékk nýja dagsetningu í dag 13. mars, annasr kemur það bara þegar það er tilbúið það hef ég alltaf sagt þegar ég er spurð hvenær ég sé sett...

...knus og kram til allra og vá hvað það styttist í jólin;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home