Ég er búin að vera að taka að mér fjölmargar ex vaktir svokallaðar sem eru aukavaktir, það er hið fínasta mál því á þeim er ég að græða 55% álag, ekki amalegt það ;o)
Ég bauð fjlsk. að Mávahlíð 44 í frokost að Rauðalæk og bauð ég uppá havarti kryddost, brauðskinku, sólkjarnabrauð, pizzubrauð, grænt ólívupestó og péturs hnetusmjör....
Ég er búin að vera að fylgjast á fullum krafti með EM í frjálsum og verður hver keppnin meira spennandi eftir því sem líður á;)
Ég er búin að vera algjör nammigrís síðastliðna daga, í gær keypti Dándi ís úr vél og skar ég niður banana, sneiddi vatnsmelónu, vínber og jarðarber og svo var skvett heitri chocolate sous á alla herlegheitina...
Í dag er ég þegar búin að laga karamellubúðing og háma í mig 3 lítil Daim, svei mér þá ef þetta er ekki mesti nammidagur lífsmýns, sem betur fer er laugardagur bara einu sinni í viku;/
Í gærkvöldi leygðum við Date Movie sem er svona í anda Scary movie og er alveg hreint þetta svakalega fyndin og gamansöm mynd og mæli ég eindregið með því að allir kíkji á hana!!
Skúli fór til Dýralæknis í gær og er hressari í dag, ég fékk sjúkrabókina hans eða svona heilsufarsbók, þar kemur fram nabbnið hans, kynið og svo á að koma lítil passamynd, ekkert smá sætt og þar er að geyma allar skoðanir sprautur og hreinsanir sem Skúli þessi elska fær;)
Ætla að leggjast útaf til 2 er alveg afvelta...kærlig hilsen ;)alle sammen