Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Já einn af þessum dögum...

Í nótt vildi ég ólm fá mér flóaða mjólk svo ég skundaði útí 10-11 sem á víst að vera opin allan sólarhringinn, byrjaði á að taka ranga beygju sem endaði með því að ég þurfti að keyra Kleppsveginn endilangan í átt að Holtagörðum þegar ég rataði loksins á útúr því beinustu leið á rétta braut á Suðurlandsbrautina þá fatta ég að ég hef gleymt aurum heima, svo ég ákveð að gera þessa ferð til kaupmannsins ekki lengri og ek heim, var búin að vea á kvöldvakt hafði lokið við að horfa með öðru auga á dvd mynd sem Dándi leygði og á RS-Supernova úrslitin með hinni, þramma með sængina og koddann minn inní herbergi í átt að rúminu enn stíg þá á spöng sem liggur þvert á gólfinu rétt við rúmstokkinn sem minnir mig á það að maður á ekki að geyma persónulega muni á víðavangi hvað þá þar sem er dimmt-skamm skamm Elísabet;/

Ekki er öll sagan úti þar því haldiði ekki að ég stilli klukkuna á 7-lengi hana svo til korter í átta nei hálf átta enn stilli á refresh svo klukkan hringir ekkert jú hún hringir átomatískt klukkan 7 í fyrrimálið but that will do no good!!-enn ég bjargaði þessu svefnerí frameftir með því að senda kallinn í langa heita sturtu og hella uppá rjúkandi suður amerískt kaffi, í expresso pressukönnu, ný malað og alles-það gerist varla betra;)

Er að spá í að koma mér á stað annað hvort ég get ekki gert það upp við mig að ljúka við myndi frá því í gær, því eins og Dándi segjir alltaf sofna ég alltaf í mesta hasarnum í nákvæmlega miðri myndinni það klikkar ekki eða drulla mér að læra e-h? þótt bæði virki freistandi held ég að ég sjóði bara vatn í potti, skeri niður nokkra sítrónu báta kúri mér í sængina fyrst að kallinn er farinn í vinnuna og góni á spennumynd-já veistu ég held það barasta.

Skúli fær kanski að vera með ef hann er stilltur;) farvel min kære venn;)Beta

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ertu hætt að vinna?? en mér lýst vel á þessa ákvörðun hjá þér að kúra þig bara undir sæng og horfa á spólu :) en ég kem heim á morgun! ættum kannski að reyna að hittast?? alveg komin tími á það er það ekki!!! :*

1:20 e.h.  
Blogger dedda said...

Júhú elskan, nei ég er að vinna á Skjóli sem er með skólanum;) reyna að hespa skólann af svo maður verði nú stúdína einn daginn fyrr eða síðar;o)

Hlakka til að sjá þig elskkann knús og kram

10:56 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home