Miklar tarnir og fullkomlega kallað helgarfrí
Já góðir hálsar ég er komin í þriggja daga já þið lásuð rétt kæru lesendur þriggja daga helgarfrí...er búin að standa á haus undanfarna 3 daga með tvöföldum vöktum er búin að vera það dugleg að ég ætla að gefa mér það í gjöf að slappa algjörlaga af og gera varla handtak næstu daga;o)
Á morgun fer ég með mömmsu til Dagfinns Dýralæknis í kettlingasprautu með Skúla og ormahreynsun svo verður hann líklegast tjippaður í leiðinni;/ Svo ætlum við á götumarkaðsútsölu í Kringlunni þar er víst margt sem kennir ýmissa grasa, buksur á þúsund KALL og allt á að seljast, svo ætlum við að gera okkur ferð í Aptótekið og versla inn vítamín fyrir mig;)
Í dag vann ég í Bingo í g röðinni í annarri lotu og vann nive créme sem ég gaf háaldraðri hásmæltri konu sem var í skýjunum yfir glaðningnum-keppnin var haldin á 4 hæð Skjóls;) og var mikið glatt á hjalla-tíhí.
Er að drífa mig þarf að klára að blása hárið ég er svo ánægð með nýju hárgreiðsluna mína er komin með tvær dækkar týpur að strípum svona brúnleytar og tvær gerðir ljósar, komin með hliðartopp og klippt hárið í tjásur niður að herðum/öxlum algjör svaka skvísa;)
Þar til næst Beta í ferðahug kveður af frónni caio bello!!
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home