Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, ágúst 04, 2006

Rigning og skúrir

Enn það gerir ekkert til þó það sé ekki að leika við okkur þetta blessaða veður þessa helgina eisn og við var að búast, því ég er að njóta þess að vera heima yfir verslunarmannahelgina-já þó ótrúlegt sé þrátt fyrir að vera mikill ferðamaður í mér þá er gott að vera í kyrrðinni heiam meðan allir íslendingar nánast flykkjast landsteinanna á milli, ég er búin að fara í verslunarleiðangur undanfarna tvo daga, og gerði ef satt skal segja alveg frábær kaup, keypti mér stígvél, jakka, buksnakjól vs. skokk og margt fleira, tvenna brjóstahaldara og ég veit ekki hvað og hvað...

Á morgun verður grillveisla hjá Ólöfu frænku ( sytur mömmu ) og þar sem flest allir í fjölsk. verða heima yfir helgina þá verður grillað lamb á línuna, við Dándi ætlum að mæta með góða skapið að sjálfsögðu;o) ekki spurning??

Ég er afvelta fór á Nýja Kökuhúsið og bauð mamma mér uppá Panini með mosarella, kalkúnaskínku, tómötum og sinnepsdressingu-jammí, enn ég át það aðeins of hratt svo ég er kominn með krómískan verk fyrir maganum sem sumir myndu einfaldlega kalla græðgi-tíhí.

Eigið góða helgi góðu landsmenn hej hej!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home