Grillveisla
Í gærkvöldi fórum við Dándi á Þingvöll og fengum okkur djús og kaffi, síðan var ferðinni heitið til Ólafar frænku og fjölsk. þar sem var fjölsk. grillveisla, lamb, salat heitt og kalt, sósur og kartöflubátar var svo setið eftir kvöldi helgið sagt sögur frá gömlum tímum og japlað á konfekti dumble og glóðvolgum kaffibolla;o) kom pakksödd heim rétt fyrir miðnætti-aha
Í dag er tiltektardagur, tókum daginn rólega, vöknuðum rétt um hádegi, Dándi fór í Danksa kontitorinn og svo var lúrað aðeins lengur, algjör fullkominn letidagur;)
Á þriðjudaginn byrja ég aftur að vinna á mínum vana vinnustað eða á Skjóli og er ég guðsfeginn að vera aftur komin í vinnu í göngufæri, með fullu fæði og settlegum launum;)-jamm ég get ekki sagt annað...
Er að hugsa um að rölta með Lucky number sleven útá vídeóleigum erum komin með að ég held 2 ef ekki 3 daga skuld,það er annað hvort bíó eða grillboð sem koma í veg fyrir að við náum að skila blessaðri spólunni í tæka tíð.
Farvel & kærlig hilsen, hej hej Beta;) stuðboltastelpa.
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home