Glorsoltin sit ég ein...
ég er svo svöng og Aldrei þessu vant er ísskápurinn koleskapen sjálfur nánast tómur!!;/ svo ég gerði ekki meira veður úr því heldur hringdi bara í Dánda og sagði honum pent hvort það væri ekkivel til fundið að hann færi og keypti til að mynda kjúklingasalat eða e-h svipað og kæmi í hádeginu heim með til mín;o) og hvað haldiði jú hann er bara að fara að renna að hlaði hvað á hverju-tíhí.
Skúli er ekki á eitt sáttur að ég sé í tölvunni og fynnst ekkert skemmtilegra enn að stytta sér stundir með því að slá með loppunum á lyklaborðið eða einfaldlega lata sig vaða bara yfir það, svo hangir hann í mér og leikur sér villt og galið og sleikir á sér rófuna þess á milli, þetta er nú meira ljúfa lífið ;)
Ég er búin að vera á endalausum kvöldvöktum sem er nú ekki svo slæmt, meiri gróði í þeim og afslappaðri vinna;) á morgun og hinn daginn verð ég á svokölluðum stubbavöktum enn þá vinn ég í fjóra tíma í senn á morgun vakt svo ég er búinn rétt eftir hádegi sem er alveg frábært því ég þarf aðeins að stússast og útrétta líka fyrir helgina;o) ;o) gef ekkert upp??-tíhí
Enn við Dándi höfum tekið ákvörðun um að trúlofa okkur, við ákváðum það einn sólríkan laugardag á tröppunum á pallinum í bústaðnum...við erum full tilhlökkunar enda er þetta ansi stórt skref fyrir okkur bæði;o) Amma gamla náði að draga það útúr okkur á mánudagskvöldið...og þá fengum auðvitað önnur skyldmenni og aðrir nærstaddir í veislunni að heyra af því og voru allir mjög ánægðir fyrir okkar hönd og við að rifna úr stolti...fullorðnafólkið Beta & Dándi-tíhí...;o)
Jæja ætla að fara að hella uppá kaffi salud amigos;o) Beta munnræpudrottningin
+copy.jpg)

2 Comments:
Trúlofa ykkur, en frábært =O) Hvenær á það svo að gerast??? =O) En afhverju ertu aldrei inn á msn?? Langar að fara að spjalla aðeins við þig!!
til hamingju með þessa ákvörðun! count me in for the wedding ;)
Skrifa ummæli
<< Home