Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, febrúar 28, 2008

vírinn?

-jámm þið spyrjið ykkur kanski hvers vegna færlsan fékk fyrirsögnina vírinn enn málið er einfalt þetta er ekki flókið maðurinn minn er farinn að bæta svolítið á sig og í morgun var hann að klæða sig í sínar venjulegu iðnaðarmanna buxur þið vitið þessar hvítu og bláu með stóru vösunum þegar ég sá hann víra saman gatið eða ölluheldur götin sem á að setja hneppuna í gegnum og þá spurði ég halló halló hvað er eiginlega í gangi hér? þá svaraði minn maður! sko þær voru orðnar dáldið þröngar sko og hummm þá datt af þeim talan og ég bara fann vír og víraði þær saman, ekki amalegt að eiga svona ráðagóðan mann enn váááá maður.

hann gladdist þó yfir því þegar ég mynnti hann á gamla parið er í þvotti og þær eru mun stærri:O) veiveiveiveiveivei

...Ætla að segja þetta gott líklegast síðasti vinnudagurinn í dag svo ég ætla að slaka á í dag og pústa all verulega í kvöld og massa þetta af:O)

knús knús Dedda...

miðvikudagur, febrúar 27, 2008

19 mánuðir

...Jámm gott fólk það voru liðnir 19 mánuðir eða tvöföld meðganga síðan ég hafði unnið síðast nokkurn skapaðan hlut þar til í síðustu viku og má ég með sanni segja að ég er dauðþreytt eftir 29 tíma vinnuviku eða svo og rúma viku:O) Híhí...

...Enn nú eru bara 2-3 dagar eftir og svo get ég aftur farið að einbeita mér að lærdómnum því það styttist í prófin gott fólk...

...Ég og góðvinkona mín ef ekki sú besta að meðtaldri Hildi Hlín bauð mér á konukvöld á Hverfisbarnum um næstu helgi nldi sér í tvo miða og ætlum við að skella okkur, mæðurnar tvær, svolítið furðuleg tilfinning að fara útá lífið sem eiginkona og móðir Híhí...Við Dándi minn áttum HÁLFS ÁRS BRÚÐKAUPSAFMÆLI á mánudaginn eða þann 25.02 og er ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða :O) svo er drengurinn minn litli eða stóri öllu heldur 11. mánaða í dag svo nú þarf að undirbúa ammælisveislu ætlar mín að bjóða uppá mat heima hjá ömmu og afa í Hlíðunum, ætla að hafa lambalæri/hrygg með öllu tilheyrandi brúnuðum kartöflum og salati og svo verður ammæliskaka á eftir sem pabbi ætlar að fjárfesta í þau dekra litla rassgatið upp fyrir haus sem er í góðu lagi sjálf var ég svona mikið dekruð enda eina barnabarnið eins og ég var um dágóðan tíma;O)

Er farin að horfa á Hádegisfréttir í televisíjóninu...Farvel og tak

sunnudagur, febrúar 24, 2008

Jámm

gott fólk íbúðin er enn á sölu og hafa ótalmargir lagt leið sína í litlu íbúðina okkar í Rauðarlæknum og skoðað og hafa nokkrir sýnt meiri áhuga enn aðrir, svo við vonum að húnf fari í bráð. 

Við erum enn að velta fyrir okkur hvort við eigum að fara að leygja eða fjárfesta í íbúð það myndi vera álíka mikill kostnaður hvernig sem færi, okkur vantar stærra og nýrra helst það væri ekki verra og barnvænt hverfi sem er í alfaraleið.

Svo er ég búin að vera að vinna á fullu vann í gær í 4a tíma heima bara hringdi út á fullu og svo verður líka törn tekin í næstu viku, ekki amalegt að vinna sér inn smá vasapéning.

Annars er allt gott að frétta svosem af okkur, litli kútur er farinn að syngja hey hey ho og segja halló, bæ bæ og hæhæ og vinka í leiðinni, segja amma, mamma og pabb pabb, svo þegar maður segjir hvar er Skúli skymar hann og leytar allt í kringum sig og bendir og segjir púff púff. HíHí.

Skólinn er aðeins búinn að sitja á hakanum hjá mér undanfarið enda mikið búið að vera að gerast ákváðum að selja, svo greip ég glóðvölg ágætisvinnu í stutta stund og svona eitt og annað að gerast. Svo nú fer vonandi að róast og ég get einbeitt mér fullkomlega hundrað og tíu prósent aftur að skólanum:O)

...Sigurlaug vinkona eignaðist lítinn strák akkurat á fæðingarstærð við minn og vil ég nýta tækifrið og óska henni til hamingju....

Begga var að bjóða mér að koma með sér á Konukvöld á Hvebbanum um næstu helgi á að vera heljarinnar fjör og absalút tók ég því og verður heljarinnar gaman hjá okkur það eru mörg ár síðan við vinkonurnar fórum saman síðast út:O)

Er farin að kíkja á guttan hann er lúllandi úti jámm og snjór farðu nú að fara ég vil sjá vorið og góða verðið það er komin sólin vantar bara hitan.

Kys Kys

þriðjudagur, febrúar 19, 2008

............

...Enikka menikka það kostar allt peninga súkadí púkkadí kaupa meira fínerí...

farin að safna péníngum

mánudagur, febrúar 18, 2008

Neyðarlegast í heimi

-okey ég var stödd með Þrándi á ónefndu kaffihúsi á suðurlandsbrautinni okey þarna kjaftaði ég af mér eins og ég á oft til okey þetta var í danska bakaríinu að sjálfsögðu og við vorum að fá okkur hlaðborð nema hvað það er varla frásögufærandi nema hvað að það er engin tómatsósa með brunchinu og því spyr Dándi um hann þá er sagt við hann tek það fram að ég var ekkert að byðja um hana enn fynnst ekkert annað en sjálfsagðara að hafa hana í boði allavega að hún væri ekki til þá sagði hann hvernig getur verið boðið uppá enskan morgunverð án tómatsósu það er aðal trixið í bókinni eins og Einar Bárða athafnamaður myndi kanski orða það þá benti Dándi gaurnum í afgraiðlunni á að hann skyldi bara redda því fór yfir á Ask og splæsti í eitt stykki svo komum við aftur nokkru síðar tek það fram að í fyrra skiptið var ég nánast komin á steypirinn þannig í seinna skiptið höfðum við litla gríslinginn meðferðis enn þá var sömu sögu að segja engin túmatsósa svo hann Dándi minn sagði hvernig stendur eiginlega á þessu þetta er ekki það stór búlla að þið eigið að vera uppiskroppa með vistir:O) í öllu góðu gríni enn afgreiðslustúlkunni fannst það aldeilis ekkert fyndið og strunsaði frá borðinu þá stökk minn maður aftur yfir á Ask enn fékk þess í stað gefins tómatsósuna takk fyrir það Askur og svo á leiðinni út ýtrekaði minn maður það að næst þegr að hann kæmi sem væri líklegast mjög fljótlega þá væri engin afsökun fyrir því að eiga ekki sósuna hann ætti hana barasta inni og ég roðnaði öll uppí rassgat ****og dreyf mig hið snarasta út svo engin tæki eftir því að ég væri með þessum manni.

Sem færir mig yfir að næstu sögu sem er í rauninni sjálfstætt frammhald af þeirri fyrri enn þannig var mál með vexti svo ég byrji hefðbundið þá fór minn maður á Olís að mig mynnir í Mosfellsbæ þar sem hann var að sprautumála og sparsla e-h ellimannablokkir/-heimili og þar var eldri kona að afgreiða takið eftir að ég segji eldri kona kona bara já komin yfir fertugt,hehe, og Dándi sagði ég ætla að fá einn kaffibolla mjög skýrt og greinilega og konan bara haaaaa, é-g æ-t-l-a  a-ð  f-á e-i-n-n  k-a-f-f-i-b-o-l-l-a og konan bara aftur haaaa og hann alveg ég trúi þessu ekki og fór að djóka eins og hann gerir oft og slær yfir í ensku efað fólk skilur e-h illa íslenska hreiminn hans og sagðu jú nó von koffí og kjéllíngin bara þetta ekki fyndið þetta þú gera grín bara af mér og þá var hún af e-h erlendu breki og hann hafði ekki grænar um það og fór alveg í kerfi já sko ég ætlaði ekkert að móðga þig neitt sko...borgað fyrir kaffið sitt og dreyf sig beinustu leið útí bílinn barasta....ji hvað menn geta verið mis e-h....hehe

Ég og kallinn vorum að horfa á fyndnasta atriði ever úr Fóstbræðrum Hildur þú kannast örugglega vel við þetta manstu...

Samræður
Afi gamli: af hverju ert þú ekki í vinnunni er búið að reka þig?
eiginmaður/-tengdasonur: nei nei ég er bara í hádegismat
Afi: að éta það er það sem menn geta enn að vinna það er e-h minna....hahahaha

ég veltist um af hlátri ýmindið ykkur Jón Gnarr sem afann gamla og Sigurjón Kjartans sem tengdasoninn fúla.

Ég ligg andvaka er svo spennt á morgun förum við og skoðum íbúð 202 í Brautarholti sem við erum að öllum líkindum að fara að leygja :O) hún er 92 m2 og 3-ja herbergja og ekkert smá flott...úúúú hvað ég er farin að innrétta hana í huganum er búin að ákveða stað fyrir hvren einn og einasta hlut og fyrir hverja einu og einustu mublu sem við eigum...

kys&kram og jess loksins er morðinginn fundinn það er Vagn ég veit það.....forbrydelsen gott fólk

sunnudagur, febrúar 17, 2008

opið hús

*það var opið hús hjá okkur í hálftíma og komu tveir áhugsamir fasteignaleytendur í síðustu viku komu er mig mynnir rétt 4 að skoða og svo bað einn um að fá að koma aftur á morgun með konunni sinni svo vonandi fer hún fasteignasalinn okkar sagðist vera mjög bjartsýnn og sagðist búast við tilboði eða boðum bráðlega og ætla sér að selja hana í næstu viku:O) Jeyjjjj vonandi

*Enn dagurinn í dag var algjört tjill við fengum gesti í kaffi og svo var farið að rúnta og fá sér í gogginn, nú er bara komið að fréttum svo ég segji bæææj.

Kys&kram

laugardagur, febrúar 16, 2008

Átak

*við erum í ljósmyndaátaki og eru nú komin öll myndböndin úr gömlu tölvunni minni á síðuna hans Steina litla auk fjölmargra mynda og svo erum við að fara að fara í gegnum allar myndir og ætlum að láta framkalla 100-200 myndir á mánuði þar til allar bestu myndirnar eru framkallaðar best að byrja á elsta mánuðinum;O)

www.barnaland.is/barn/56879
!!þar eru allar myndirnar þar á meðal heill hellingur af mér óléttri og af ferðalagi okkar hjóna fyrir fæðingu sonar okkar og allt fullt af nýburamyndum, endilega skoðið!!

KYS&KRAM er farin að þrífa það verður opið hús á morgun og það eru þegar 4 búnir að skoða á 5 dögum;O) fingers crossed.

fimmtudagur, febrúar 14, 2008

Orðabók Steinars Mána

*da: datt
*dada:pabbi
*mammmma:mamma
*nei:nei

hann er undradrengur þetta blessaða barn maður er alltaf að læra e-h nýtt af honum á hverjum degi, hann stækkar og stækkar og dröslar grindinn og bílnum sínum á eftir sér eða dregur þetta ýmist á undan sér þessi lille skatebasse.

...Er farin að kúra og knúsast með litla englabossanum mínum.

Valentínusar...
pjé ess: er að kabbna ég get ekki beðið eftir að skiptast á valentínusargjöfum við Dánda minn 
@>->--->----

knús og billjón kossar

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

Letiblóð

...ég er algjört letiblóð þessa dagana elska að sitja í sloppnum fyrir framan tölvuna og sötra á kaffidreytil, líka frekar einkennilegt að geta skoðað sína eigin íbúð á netinu þar sem allir persónulegu munir sjást, frekar einkennilegt verð ég að segja...

...Steinar Máni elskan er búinn að vera algjör svefnpurka í dag hann sofnaði í kringum 21 leytið í gærkvöldi og þurfti ég að vekja hann rúmlega tólf eftir hádegi í dag hann er reyndar búinn að dorma enn er samt óttaleg svefnpurka-Thíhí-...

...Ég er búin að fylla út í svokallaða baby kalender, den forste år-uge for uge-allt frá því áður enn Steinar Máni fæddist síðustu dagana áður, og er hún að klárast núna og er ekkert smá gaman að lesa aftur í tíman hvað ég var eða við fjölsk. vorum að bardússast síðasta árið það er allt frá því að fara út í bíltúr í þingvallarhrepp yfir í að máta brúðarkjóla og fara í prufuförðun-og greiðslu. Þetta er bók sem er orðin mér mjög dýrmæt og á ég eftir að geyma hana á góðum stað og draga hana framm reglulega og rifja upp góðar stundir;O)...

...oh Steinar Máni er alveg að líða aftur útaf þessi engill verð að fara að vekja hann meika ekki að snúa sólarhringnum við og eiga þá eftir að vaka í alla nótt-Thíhí-...

Eigið góðan dag KOSS OG KNÚS á línuna

p.s. gamall vinur bróður míns var að fynnast eftir u.þ.b. viku leyt dáinn úti í DK og er hægt að lesa nánar um það á linknum fyrir ofan hjá fyrirsögninni.

laugardagur, febrúar 09, 2008

Íbúð Til Sölu

Ef þið þekkjið e-h sem er í fluttningahugleiðingum og er að leyta sér að 2ja herbergja 60m2 íbúð í góðu hverfi í hjartaborgarinn beinið þeim endilega á Re/Max, þeir eru með allar nauðsynlegar upplýsingar á hreinu;O)

Annars er það að frétta að við erum semsagt búin að setja eignina okkar að Rauðalæknum á sölu og stefnum á að selja sem fyrst fasteignasalinn sagði að eignin væri mjög góð og frábærlega staðsett svo við eigum að fá gott verð fyrir hana, krossaðir fingur;O)

Annars vonumst við bara til þess að geta flutt sem fyrst og vonandi bara í næsta eða þarnæsta mánuði svo ég standi nú ekki í fluttningum í vorprófunum.

Knus og aftur knus Beta nammigrís.

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Svangi-Mangi

...Ég er búin að vera hrikalega svöng frá því að ég vaknaði í morgun...

farin að róta í ískápnum;O)

mánudagur, febrúar 04, 2008

Ælupestin

Litla krúttið mitt er komið ælupestina, það er ekkert jafn erfitt og að horfa uppá gimsteininn sinn kveljast æla og fynna til í maganum, hann er með ómlda magapínu, úff púff hvað þetta er erfitt.

að lokum...smá innslag um minn uppáhaldshönnuð þessa dagana, ;O)...

Salvador Dalí-Genio Y Locura
Salvador Dali (1904-1989) era catalán y es considerado una de las figuras más importantes del arte espanol de este siglo. Vivó en París entre 1929 y 1939 y allí conoció a los pintores surrealista más importantes...

...smá upphitun fyrir spænsku prófið mitt;O)

laugardagur, febrúar 02, 2008

SKÚLI ELSKAN

*Þessi færsla er tileinkuð Skúla. 

Það var að renna upp fyrir  mér að í næsta mánuði verður Skúli elskan 2 ára , hann bjó hjá okkur frá miðjum maí til enda nóvember og hefur verið hjá mömmu, pabba og Gulla Steinari síðan og við heimsækjum hann reglulega og færum honum mat og gjafir (dót og svona) enn það er samt ekki eins ég sakna hans stundum svo mikið að ég get alveg fengið tár í augun, málið var það að það bjuggu fólk í húsinu sem var með ofnæmi fyrir Podolsky (pólska verkamanninum okkar) ;O) svo hann varð að fara annað enn þau fluttu fyrir að verða ári enn hann hefur það svo gott og er svo vel dekraður í Mávahlíðinni hjá foreldrum mínum og bróðir enn samt sakna ég hans svo obboslega mikið, eins og þegar ég er að læra á daginn og Steinar Máni er sobbnaður úti á tröppum þá hugsa ég til hans hann sat alltaf hliðin á manni þegar maður var með gesti og bara þegar við Dándi áttum day 2 day samræður og þegar við vorum sofandi þá svaf hann alltaf á milli okkar, mér verður hugsað til 1eins skiptis þegar Dándi lokaði hurðinni inní svefnherbergið sökum gegnumtrekks og Skúli varð eftir frammi án þess að við vissum af og ég vaknaði um nóttina og þá var Skúli grátandi fyrir utan hurðina og gat ekki sobbnað því hann var ekki hjá okkur í rúminu svo ég tók hann og vafði honum inní sængina mína og breyddi vel yfir hann og hann sobbnaði samstundis, það sýnir bara hversu tilfinninganæmur hann er svo er annað sem ég dýrka við hann hann elskar alla kassa hann elskar sérstaklega eggjabakka hann reynir að troða sér í þá fynnst hann vera pínku lítill enn áttar sig  ekki á því hvað hann hefur stækkað og það fer bara vel um hann í litlum kössum og plasti og bréfi bara öllu eins og gjafapappír hann kemur sér vel fyrir inní þeim;O) hann er svo mikið krútt, það gerir hann líka einstakan hvað hann er persónulegur köttur.

Hann fékk að fara út í ól fyrir svolitlu síðan og hann varð svo hræddur og hljóp í fangið á bróðir mínum og mömmu þegar bíll fór í gang, hann tekur líka alltaf á móti manni þegar maður kemur í heimsókn, fylgist með í glugganum og svo er hann svo stilltur er hræddastur í heiminum við lítil börn ekkert hræðir hann jafn mikið þá læðist hann framhjá svo þau taki ekki eftir og felur sig inní skáp jafnvel þar til þau fara heim og skelfur alveg úr hræðslu og ef að síminn hans pabba hringir og hann er sofandi þá röltir Skúli að honum og pikkar í hann hann er svo klár þessi litli kisi, hvernig er annað hægt enn að vera ÁSTFANGINN af honum??!!



TILEINKAÐ SKÚLA PODOLSKY (Pólskum verkamanni með meiru;O)

Starbucks

Ég lagði það í vana minn að leggja leiðinni alla leið inní skeifuna í Hagkaup til að fá gott kaffi enn er farinn að átta mig á því að það er ekki svo mikið kaffið öllu heldur kaffivélin sem gerir kaffið svona gott og þess vegna er ég farinn að blanda saman hinum ýmsu kaffitegundum og fynnst ég alltaf fynna e-h nýtt og e-h gott í hverri viku er ekki jafn vanaföst eins og ég var áður fyrr.

Við Steinar Máni erum að fara uppeftir í hesthúsið hans Gulla afa seinna í dag með ömmu og sýna SM hott hott. Sá verður aldeilis ánægður litli kallinn.

Mig langaði aðeins að koma inná það að við hjónin höfum fylgst spennt með Forbrydelsen undanfarnar vikur og mánuði og er hiti að færast í leikinn maður er alltaf að gera sér einhverjar nýjar og nýjar hugmyndir um hver er morðinginn enn alltaf hefur maður rangt fyrir sér þar til við gáfumst uppá þessu og lásum í www.extrabladet.dk hver morðinginn í raun og veru væri, svo vorum við að komast að því að komið er nýtt sjálfstætt framhald úti í Denmark þar sem nýtt plott fyrirfynnst og þá spyr maður sig hver er þá morðinginn enn við vorum að reikna út að til þess að komast að því verðum við að klára þessa 20 þætti sem eru sýndir hér á landi og tuttugu aðra nýja og eru þetta vikulegir þættir svo við komumst að því ekki fyrr enn í byrjun næsta árs býst ég við eða e-h álíka sem er alltaf langur tími, svo hvað gera bændur þá?? það er spurning ég veit það ekki og svo er það annað að það er ekkert hægt að grenslast um þetta neinstaðar því leikararnir vita ekki sjálfir hver er morðinginn þeir lesa bara handrit fyrir hverja viku í senn og handritin eru þar að auki skrifuð einungis fyrir hverja viku. OHHH þetta er ómögulegt Mission skíta mission eins og einhverjir myndu kalla það;O) svo menn verða víst bara að bíða þolinmóðir og það er e-h sem ég kann hvorki né hef í mér Tíhí tíhí...

....jæja svo nú hætti ég þessari endalausu vitleysu og fari að snúa mér aftur að barni og lærdómi

KNUS KNUS