Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

Letiblóð

...ég er algjört letiblóð þessa dagana elska að sitja í sloppnum fyrir framan tölvuna og sötra á kaffidreytil, líka frekar einkennilegt að geta skoðað sína eigin íbúð á netinu þar sem allir persónulegu munir sjást, frekar einkennilegt verð ég að segja...

...Steinar Máni elskan er búinn að vera algjör svefnpurka í dag hann sofnaði í kringum 21 leytið í gærkvöldi og þurfti ég að vekja hann rúmlega tólf eftir hádegi í dag hann er reyndar búinn að dorma enn er samt óttaleg svefnpurka-Thíhí-...

...Ég er búin að fylla út í svokallaða baby kalender, den forste år-uge for uge-allt frá því áður enn Steinar Máni fæddist síðustu dagana áður, og er hún að klárast núna og er ekkert smá gaman að lesa aftur í tíman hvað ég var eða við fjölsk. vorum að bardússast síðasta árið það er allt frá því að fara út í bíltúr í þingvallarhrepp yfir í að máta brúðarkjóla og fara í prufuförðun-og greiðslu. Þetta er bók sem er orðin mér mjög dýrmæt og á ég eftir að geyma hana á góðum stað og draga hana framm reglulega og rifja upp góðar stundir;O)...

...oh Steinar Máni er alveg að líða aftur útaf þessi engill verð að fara að vekja hann meika ekki að snúa sólarhringnum við og eiga þá eftir að vaka í alla nótt-Thíhí-...

Eigið góðan dag KOSS OG KNÚS á línuna

p.s. gamall vinur bróður míns var að fynnast eftir u.þ.b. viku leyt dáinn úti í DK og er hægt að lesa nánar um það á linknum fyrir ofan hjá fyrirsögninni.

1 Comments:

Blogger dedda said...

!! www.extrabladet.dk !!

12:39 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home