Starbucks
Ég lagði það í vana minn að leggja leiðinni alla leið inní skeifuna í Hagkaup til að fá gott kaffi enn er farinn að átta mig á því að það er ekki svo mikið kaffið öllu heldur kaffivélin sem gerir kaffið svona gott og þess vegna er ég farinn að blanda saman hinum ýmsu kaffitegundum og fynnst ég alltaf fynna e-h nýtt og e-h gott í hverri viku er ekki jafn vanaföst eins og ég var áður fyrr.
Við Steinar Máni erum að fara uppeftir í hesthúsið hans Gulla afa seinna í dag með ömmu og sýna SM hott hott. Sá verður aldeilis ánægður litli kallinn.
Mig langaði aðeins að koma inná það að við hjónin höfum fylgst spennt með Forbrydelsen undanfarnar vikur og mánuði og er hiti að færast í leikinn maður er alltaf að gera sér einhverjar nýjar og nýjar hugmyndir um hver er morðinginn enn alltaf hefur maður rangt fyrir sér þar til við gáfumst uppá þessu og lásum í www.extrabladet.dk hver morðinginn í raun og veru væri, svo vorum við að komast að því að komið er nýtt sjálfstætt framhald úti í Denmark þar sem nýtt plott fyrirfynnst og þá spyr maður sig hver er þá morðinginn enn við vorum að reikna út að til þess að komast að því verðum við að klára þessa 20 þætti sem eru sýndir hér á landi og tuttugu aðra nýja og eru þetta vikulegir þættir svo við komumst að því ekki fyrr enn í byrjun næsta árs býst ég við eða e-h álíka sem er alltaf langur tími, svo hvað gera bændur þá?? það er spurning ég veit það ekki og svo er það annað að það er ekkert hægt að grenslast um þetta neinstaðar því leikararnir vita ekki sjálfir hver er morðinginn þeir lesa bara handrit fyrir hverja viku í senn og handritin eru þar að auki skrifuð einungis fyrir hverja viku. OHHH þetta er ómögulegt Mission skíta mission eins og einhverjir myndu kalla það;O) svo menn verða víst bara að bíða þolinmóðir og það er e-h sem ég kann hvorki né hef í mér Tíhí tíhí...
....jæja svo nú hætti ég þessari endalausu vitleysu og fari að snúa mér aftur að barni og lærdómi
KNUS KNUS
+copy.jpg)

1 Comments:
við horfum líka alltaf á þessa þætti, og vorum einmitt að ræða það að maður er búin að horfa núna á alveg 16 þætti eða eitthvað og þá loksins eru þau að maður heldur komin á sporið..... en samt skemmtilegir þættir
Skrifa ummæli
<< Home