SKÚLI ELSKAN
*Þessi færsla er tileinkuð Skúla.
Það var að renna upp fyrir mér að í næsta mánuði verður Skúli elskan 2 ára , hann bjó hjá okkur frá miðjum maí til enda nóvember og hefur verið hjá mömmu, pabba og Gulla Steinari síðan og við heimsækjum hann reglulega og færum honum mat og gjafir (dót og svona) enn það er samt ekki eins ég sakna hans stundum svo mikið að ég get alveg fengið tár í augun, málið var það að það bjuggu fólk í húsinu sem var með ofnæmi fyrir Podolsky (pólska verkamanninum okkar) ;O) svo hann varð að fara annað enn þau fluttu fyrir að verða ári enn hann hefur það svo gott og er svo vel dekraður í Mávahlíðinni hjá foreldrum mínum og bróðir enn samt sakna ég hans svo obboslega mikið, eins og þegar ég er að læra á daginn og Steinar Máni er sobbnaður úti á tröppum þá hugsa ég til hans hann sat alltaf hliðin á manni þegar maður var með gesti og bara þegar við Dándi áttum day 2 day samræður og þegar við vorum sofandi þá svaf hann alltaf á milli okkar, mér verður hugsað til 1eins skiptis þegar Dándi lokaði hurðinni inní svefnherbergið sökum gegnumtrekks og Skúli varð eftir frammi án þess að við vissum af og ég vaknaði um nóttina og þá var Skúli grátandi fyrir utan hurðina og gat ekki sobbnað því hann var ekki hjá okkur í rúminu svo ég tók hann og vafði honum inní sængina mína og breyddi vel yfir hann og hann sobbnaði samstundis, það sýnir bara hversu tilfinninganæmur hann er svo er annað sem ég dýrka við hann hann elskar alla kassa hann elskar sérstaklega eggjabakka hann reynir að troða sér í þá fynnst hann vera pínku lítill enn áttar sig ekki á því hvað hann hefur stækkað og það fer bara vel um hann í litlum kössum og plasti og bréfi bara öllu eins og gjafapappír hann kemur sér vel fyrir inní þeim;O) hann er svo mikið krútt, það gerir hann líka einstakan hvað hann er persónulegur köttur.
Hann fékk að fara út í ól fyrir svolitlu síðan og hann varð svo hræddur og hljóp í fangið á bróðir mínum og mömmu þegar bíll fór í gang, hann tekur líka alltaf á móti manni þegar maður kemur í heimsókn, fylgist með í glugganum og svo er hann svo stilltur er hræddastur í heiminum við lítil börn ekkert hræðir hann jafn mikið þá læðist hann framhjá svo þau taki ekki eftir og felur sig inní skáp jafnvel þar til þau fara heim og skelfur alveg úr hræðslu og ef að síminn hans pabba hringir og hann er sofandi þá röltir Skúli að honum og pikkar í hann hann er svo klár þessi litli kisi, hvernig er annað hægt enn að vera ÁSTFANGINN af honum??!!
TILEINKAÐ SKÚLA PODOLSKY (Pólskum verkamanni með meiru;O)
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home