Jámm
gott fólk íbúðin er enn á sölu og hafa ótalmargir lagt leið sína í litlu íbúðina okkar í Rauðarlæknum og skoðað og hafa nokkrir sýnt meiri áhuga enn aðrir, svo við vonum að húnf fari í bráð.
Við erum enn að velta fyrir okkur hvort við eigum að fara að leygja eða fjárfesta í íbúð það myndi vera álíka mikill kostnaður hvernig sem færi, okkur vantar stærra og nýrra helst það væri ekki verra og barnvænt hverfi sem er í alfaraleið.
Svo er ég búin að vera að vinna á fullu vann í gær í 4a tíma heima bara hringdi út á fullu og svo verður líka törn tekin í næstu viku, ekki amalegt að vinna sér inn smá vasapéning.
Annars er allt gott að frétta svosem af okkur, litli kútur er farinn að syngja hey hey ho og segja halló, bæ bæ og hæhæ og vinka í leiðinni, segja amma, mamma og pabb pabb, svo þegar maður segjir hvar er Skúli skymar hann og leytar allt í kringum sig og bendir og segjir púff púff. HíHí.
Skólinn er aðeins búinn að sitja á hakanum hjá mér undanfarið enda mikið búið að vera að gerast ákváðum að selja, svo greip ég glóðvölg ágætisvinnu í stutta stund og svona eitt og annað að gerast. Svo nú fer vonandi að róast og ég get einbeitt mér fullkomlega hundrað og tíu prósent aftur að skólanum:O)
...Sigurlaug vinkona eignaðist lítinn strák akkurat á fæðingarstærð við minn og vil ég nýta tækifrið og óska henni til hamingju....
Begga var að bjóða mér að koma með sér á Konukvöld á Hvebbanum um næstu helgi á að vera heljarinnar fjör og absalút tók ég því og verður heljarinnar gaman hjá okkur það eru mörg ár síðan við vinkonurnar fórum saman síðast út:O)
Er farin að kíkja á guttan hann er lúllandi úti jámm og snjór farðu nú að fara ég vil sjá vorið og góða verðið það er komin sólin vantar bara hitan.
Kys Kys
+copy.jpg)

3 Comments:
hvar ertu farin að vinna kona góð ? Nína
...hej hej ég er farin að vinna fyrir SÁÁ svona í síma bara eitt og eitt kvöld og um hádegisbilið um helgar...
...hej hej ég er farin að vinna fyrir SÁÁ svona í síma bara eitt og eitt kvöld og um hádegisbilið um helgar...
Skrifa ummæli
<< Home