Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

mánudagur, apríl 28, 2008

Farin að versla inn

Ég er farin að versla í matinn mig langar svo að vera skynsöm og gera skipulag fyrir hvern matmálstíma sem dæmi í dag: fiskur í raspi með remólaði, lauk og soðnum kartöflum. Enn ég er þannig dama af guðs náð að ef ég ákveð að hafa e-h e-hvern daginn og svo bregður e-h útaf okkur er boðið í mat eða förum e-h að borða þá á það eftir að hrjá mig ef ég ákveð e-h verður þaða ð standa...svona oftast nær:o)

Þetta get ég S.M.Þ. 13 mánaða....

-borðað alveg sjálfur og nánast drukkið
-klappað kisunni Skúla og verið ahh við hann
-flokkað blöð án þess að rífa þau fyrir mömmu
-hermt eftir sumu sem aðrir segja upphátt
-klætt mig úr skóm og sokkum, buxum og renndum eða hnepptum peysum
-klappað, gengið, veifað sagt hæ, bæ og nei, takk og hættu
-hermt eftir Bubba Byggir með hamarinn minn sem er í rauninni læknisdót
-kastað bolta 
-knúsað og kjassað fólk sem mér þykir vænt um

Ég er auðvitað bestastur og klárastur af mömmu og pabba að dæma

kos&klem (eins og svíarnir myndu orða það)

föstudagur, apríl 25, 2008

lalalalalala præsless

nú er ég í góðum málum lalalalla lalalla Hildur Hlín mín bestasta besta vinkona á 36 töskur jámm ég á ekki svo margar og ennfærri skó Dándi minn er nefnilega alltaf að hvarta yfir öllum töskunum og skónum þá þarf ég engu að kvíða ég er ekki með tærnar þar sem hún hefur hælana í þessum málum....reyndar er ég með fullt af töskum og þónokra skó í flugfreyjutösku alveg hjúmongós niðri í geymslu enn það telst ekki með er það nokkuð:O) tíhí tíhí....

Farin að lesa Hagfræði og spænsku

miðvikudagur, apríl 23, 2008

Ó HAPPÍ DEI

Mikið lifandi skelfingar er gaman að vera svona heilsuhraustur...10 góð ráð til þess að lifa heilbrigðu og langlífu lífi...

1. borða góðan morgunmat ekki seinna en um 10 leytið (fara árla dags á fætur)
2. hreyfa sig reglulega (má undanskylja helgar -og helgidaga), s.s. ganga, sund.
3. ekki reykja (forðast óbeinar reykingar)
4. ekki drekka áfengi nema í hófi (t.d. 1-2 bjórar 4-8 sinnum á ári)
5. ekki neyta ólöglegra vímuefna.
6. fara snemma að sofa og vakna snemma
7. njóta ásta (vina, maka, barna) vera elskaður og elska aðra
8. drekka te og kaffi í hófi (græntte og koffínlaust kaffi er mjög skynsamlegt) fyrir mikla koffínunnendur.
9. hlusta á rólega tónlist og slaka á (eiga sinn tíma 2-3 í viku)
10. lifa eftir reglum 1-9.

1000 BILLJóN KOSSAR frá Deddu litlu prinsessu

fimmtudagur, apríl 17, 2008

... Me gustas ...

Ég er ástfangin uppfyrir haus, sagði við kallinn í gærkvöldi að ég væri orðin svo hrifin að ég gæti hreinlega sprungið ef ekki kabbnað:D 
Nú sagði hann enn skyldi mig eftir að ég fletti og sýndi honum á veraldarvefnum inná síðurnar www.zara.es, www.mango.es/limited editionið og inná www.victoriassecret.com. Ég verð að komast í búðir og það STRAX, aldrei að vita nema maður verði sendur í heimsókn til Hildar sinnar bráðlega að eyða smá kassi-ThíThí

.......knús og kram.......

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Fullt að gera

Ég byrjaði á því í fyrradag að reka augun í óvenjulegan fæðingarblett og þar sem ég er með sögu af sortuæxli frá því fyrir ári síðan hjá mér þá fékk ég samstundis tíma og verður hann myndaðu og skoðaður til hlýtar seinna í dag og ætlar amma gamla Sigga Clausen að sjálfsögðu að koma með mér eins og vanalega....svo við bara krossleggjum fingurnar og vonum að allt verði í lagi:D

Ég er að drukkna bókstaflega á bólakafi í djúpulauginni það er svo mikið að gera í skólanum er komin í rúmlega viku frí í vinnunni og nota það sem tilvalið tkifæri til upplestrarfrís....Í gær stúderaði ég Hagfræði eða Rekstrarhagfræði fyrirtækja -og heimilanna og í dag verður það spænska 403 sem er útskriftaráfanginn og ætti ég að hafa þokkalegt forskot á flesta aðra þar sem ég dvaldi yfir tvö misseri úti á Spáni í Barcelona, sjálfu Cataloniahverfinu hjarta bæjarins í Sant Cugat, í rólegu úthjaðri þar sem engin enska var töluð og maður einfaldlega neiddist til þess að taka upp tungumálið þeirra sem betur fer því ég bý enn að þeirri kunnáttu nú í dag!:D

Er farin að stúdera Exel skjöl og náttúruauðlindirnar okkar þrjár-Knús knús

sunnudagur, apríl 13, 2008

Vinnan, skólinn, fjölsk.

Það er nóóóg að gera næstu daga er í fríi næsta viku frá vinnunni og ætla að nýta tíman í að læra...svo er að koma sumar og þá verður það fjölsk.

Er farin að grugga í hagfræði-rekstrarhagfræðinni og spænskunni, það er orðið svo stutt í prófin.

Knús Knús :D

þriðjudagur, apríl 08, 2008

Próftaflan og Capacent

Nóg að gera á litlum bæjum, er komin á fullt í vinnuna aftur, svo hef ég verið að undirbúa og ljúka við ferilskrá bara gott að eiga eina tók reyndar tvírit eða copy á mannamáli. Svo er skólinn á fullu u.þ.b. mánuðir í lokaprófin tek fjögur próf og svo vonandi fer Hildur besta vinkona að láta sjá sig fljótlega.

Hef þetta ekki lengra í bili er svo að drukkna í vinnu :D

kos og klem dedda litla prinsessa

sunnudagur, apríl 06, 2008

Jabbadabbadú

váááá hvað það er komið mikið vor í landan....erum búin að vera í veislu á eftir veislu og að keyra um landið undanfarnar vikur og daga og ég bara held það sé að koma jafnvel sumar, ég geng sko svo langt....

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Hótel Örk í maí

-Er búin að panta sælulykil á Hótel Örk í Hveragerði fyrir okkur Dánda minn föstud.2 maí-laugard.3.maí í tilefni af 29 ára afmælinu hans:O)
-Búin að redda pössun fyrir stráksa á meðan hjá foreldrunum, úff hvað ég hlakka til, það verður dekur, sund, horft á imbann uppí twin rúminu og svo 3 rétta kvöldverður innifalinn á Hótelinu, svo verður byrjað að taka á móti okkur með fordrykk, ummh.

Knús og kossar á línuna og takk fyrir strákinn það komu svo margir í afmælið hans og hann fékk heilan helling af fallegum gjöfum.