Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, apríl 15, 2008

Fullt að gera

Ég byrjaði á því í fyrradag að reka augun í óvenjulegan fæðingarblett og þar sem ég er með sögu af sortuæxli frá því fyrir ári síðan hjá mér þá fékk ég samstundis tíma og verður hann myndaðu og skoðaður til hlýtar seinna í dag og ætlar amma gamla Sigga Clausen að sjálfsögðu að koma með mér eins og vanalega....svo við bara krossleggjum fingurnar og vonum að allt verði í lagi:D

Ég er að drukkna bókstaflega á bólakafi í djúpulauginni það er svo mikið að gera í skólanum er komin í rúmlega viku frí í vinnunni og nota það sem tilvalið tkifæri til upplestrarfrís....Í gær stúderaði ég Hagfræði eða Rekstrarhagfræði fyrirtækja -og heimilanna og í dag verður það spænska 403 sem er útskriftaráfanginn og ætti ég að hafa þokkalegt forskot á flesta aðra þar sem ég dvaldi yfir tvö misseri úti á Spáni í Barcelona, sjálfu Cataloniahverfinu hjarta bæjarins í Sant Cugat, í rólegu úthjaðri þar sem engin enska var töluð og maður einfaldlega neiddist til þess að taka upp tungumálið þeirra sem betur fer því ég bý enn að þeirri kunnáttu nú í dag!:D

Er farin að stúdera Exel skjöl og náttúruauðlindirnar okkar þrjár-Knús knús

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home