Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, mars 27, 2008

Tileinkað Steinari Mána

...Elsku besti sonur minn á sitt fyrsta afmæli í dag...

húrra húrra húrra

þriðjudagur, mars 25, 2008

zzzzz

Ég er búin að vera úber dugleg undanfarið tla þess vegna að fara út að versla í Krónunni, koma heim liggja með tærnar uppí loftið og sötra á rjúkandi kaffidreytil, horfa á EXIT með Mads Mikelsen í 2 skipti, leggja strákinn útá svalir, gera tvö krossaprof svo ég fái einkunagjöf fyrir ritgerðina mína í þessu lífi!:O) var að fatta að til þess að fá einkun þarf ég að ljúka tveimur krossaprófum og síðan ætla ég að setja í eina vél leggja mig til hálf fjögur, fara í sturtu, vinna í tvo tíma, bóka fólk í blóðprufur uppá Vog, drífa mig þaðan í afmæli og loks enda heima yfir kassanum og horfa á seinni hluta elskendur part II. og eftir það um sirka 12 leytið ætla ég að leggjast uppí rúm í náttkjólnum og sofna, nei kanski engin afslöppun í dag, kanski á morgun baar í staðin nei held ekki samt það ma´alltaf láta sig dreyma!!

knús á línuna...

mánudagur, mars 24, 2008

Easter

Happy Easter...
ég er búin að vera uppfyrir haus að læra og vinna og þess á milla að reyna að sinna barni og manni, sem gengur alveg príðilega hingað til:O)
á fimmtudaginn verður sonur minn frumburður minn eins árs gamall og verður afmælið hans haldið með nafna hans um næstu helgi heima hjá ömmu og afa, er komið á hreint að boðið verður uppá gúllassúpu, brauð, pestó, hummus og spínatsalat svo verða börnin pulsuðu upp og svo ammælisterta á eftir með kaffinu, ummh rjúkandi góð blanda.

ætla að hafa þetta stutt í bili eiginmaðurinn minn er svo athyglissjúkur að ég verð að fara að sinna honum, tilvalið og upplagt að skella sér í laugina, nema hvað!

adios amigos, hasta luego, la isla bonita, salud, skål i stuen og allur pakkinn...caio bello nei djók í mér sælar dömur mínar og herrar.

fimmtudagur, mars 20, 2008

Gulli Steinar

-Hann nafni sonar míns fékk bílprófið sitt í gær, hann stendur sig hreint út sagt með príði hann varð sautján ára í fyrradag, tók bóklega prófið á mánudag og verklega í gær og það er ekki að spyrja að því töffarinn var strax farinn út á rúntinn með Hauki í gærkvöldi á Benzinum þeirra foreldra minna.
-Hann er svo duglegur er að standa sig svo frábærlega á náttúrufræðibrautinni í mh og svo er hann svo mikill hjóla bmx kall og á eitt flottasta hjól landsins rándýrt alveg sérspes pantað frá útlandinu og er alltaf að breyta því og stilla svo fer hann mikið í loftkastalan og inní reykjarnesbæ að hjóla í brettahjólarömpum í svona höllum sem eru spes bygðar fyrir svona menn!

Vildi bara segja við óskum þér alls hins besta og farðu varlega, þú ert bestur.
*fjölsk. Rauðarlæk 71* :O)

miðvikudagur, mars 12, 2008

Allt í öllu

-Nóg að gera á minni könnu, var að ljúka við í gærdag og sendi Ritgerðina mína, er komin með vinnu í S.Á.Á. þar sem ég vinn að ransóknarvinnu fyrir Decode og ÍE (Íslenska erfðagreiningu), kanna lungnasjúkdóma hjá reikingarmönnum, vímuefnafíkn, bóka fólk í viðtöl og í blóðransóknir á sjúkrahúsinu Vogi og hef samband við ættingja sem kunna einnig að bera sömu fíkn og þeir sem hafa verið innlagðir á Vogi, þetta er styrkt af Evrópusambandinu og er 5 ára prósess og er 3ur árum lokið og tvö eftir. 
-Svo fórum við famelían (alle sammen) að skoða einn pínkulítinn oggursætan leikskóla hér rétt hjá og svo er bara búin að vera sankölluð afslöppun restina af deginum, það vær kíkt á gamla settið ömmu og afa og farið í göngutúr niður í kjörbúðina og svo bara er kominn matur.

Farin að elda spagetthí bolognesa

mánudagur, mars 10, 2008

Bubbi Byggir

-Steinsi litli er farinn að bæta töluvert við orðaforðan sinn þar kemur Bubbi Byggir sterkt inn eða Bubbi Bubbi eins og hann segjir og svo dillar hann sér svona til hliðanna og upp og niður, ha ha.

-Nú eru 4 fermingar framundan og svo tvöfalt ammæli hjá Steinunum, þar er að segja Gulli steinar verður 17. ára er að fara að fá bílpróf töffarinn sá er farinn að vinna til að safna sér fyrir bíl svo hann geti keypt sér næsta sumar og svo verður steinar Máni 1. árs og ætlum við að slá ammælunum upp saman heima hjá ömmu gömlu í Barmahlíðinni og halda kvöldverðarboð, með læri, sósu, kartöflum salati og ammælisköku:O)

Verð að þjóta skæuliðinn er að ganga af göflunum inní rúminu sínu....Hasta luego amigos

fimmtudagur, mars 06, 2008

Tanaður Í Drasl

!!nú er þjóðarátak vörn gegn ljósabekkjanotkun!!
www.hudlaeknastodin.is 
Nú gengur yfir herferð með yfirskriftinni HÆTTAN ER LJÓS...

Sjálf greindist ég með húðkrabbamein af völdum sólarofnots ef svo má segja fyrir akkurat ári síðan eða í apríl s.l. það fannst sortuæxli á fyrsta-grunnstigi, sortuæxli er auðþekkjanlegasta enn lang alvarlegasta húðkrabbameinið, það á auðveldast með að fjölga eða dreyfa sér myndar svokölluð meinvörp, grefur sig ofan í húðina birtist oftast sem dökkur eða rauðleytur blettur útfrá fæðingarbletti svo blæður oft úr honum, getur verið ertandi þannig að það myndast kláði í honum, ef hann er ekki greindur og fjarlgður með aðstoð lýtalæknis hið snarasta eykst hættan á að hann dreyfi sér útí önnur líffæri þá aðalega lifrina, magann og lungun enda eru allir sem greinast með þessa sort af húðkrabbameini sendir í mjög öruggt eftir lit, oft á ári í 6-7 ár á meðan aðal hættan vofir yfir og líka í fjölmargar blóðprufur og röntgen eða ómskoðun þar sem líffærin eru öll skönnuð með svokölluð skuggalyfi, þau eru plötuð og þá má vel sjá hvar hafa myndast æxli eða svokallaðir blettir ótrúlegt hvað maður er með þetta allt á hreinu:O) enn sem betur fer var ekkert sjáanlegt hjá mér svo ég er bara í venjulegu eftirliti næstu árin eða allt til 2012-13....

Ég vil vara fólk við ofnotkun sólarljóss hvers kyns sem hún er hvort sem það eru bekkir eða sólin okkar sjálf sem skín allt í kringum okkur, nota sólarvörn og alls alls ekki fara í ljós. Sólin getur verið hvort í senn besti og versti vinur manns:O) munið það börnin góð.

-er farin að kúra með litla manninum mínum sem er farinn að segja babbi og senda mér hundrað fingurkossa á dag.....pís át hómís

mánudagur, mars 03, 2008

Dadarada Daaa

-Það var auglýst í Re/Max blaðinu sem fylgir fréttablaðinu í gærdag að íbúðin var opin fyrir skoðanir í gær í rúman hálftíma, það komu 4 og voru víst 2 af þeim mjög áhugasamir.

-Steinsi litli er kominn með barkabólgu svo gærdagurinn fór aðalega í spítalaferðir, þar sem honum voru gefnar stertöflur sem að var sprautað uppí litlu hetjuna og svo þurfti elskan að vera með svona púst í gegnum slöngu úr vél í alllangan tíma og var orðinn frekar pirraður undir restina:/

-Ég er í átaki í skólanum ætla að reyna að trompa þennan blessaða skóla af og byrjaði í gærkvöldi á fullu í íslenskunni að undirstrika og glósa, mamma og pabbi uppfærðu glósurnar mínar í tölvunni með outlines og prentuðu út til skiptis handa mér svo nú er bara að sýna gömlu hjónunum (gamla settinu) hvað maður er getur:O)

...Ætla ekki að hafa þetta lengra er svo sibbin eftir helgina svaf lítið í nótt útaf litla sólargeislanum og í fyrrinótt vorum við Begga á djamminu sem ég er alfarið hætt HÆTT jámm ég og við erum orðnar alltof gamlar fyrir þetta fórum rúmlega 23 í bæinn og vorum komnar heim fyrir tvö í kringum svona hálf tvö semsagt gamlingjar sem eigum bara að vera heima að knúsast og kúrast með mönnunum okkar, enda komu strákarnir beint af karlakvöldinu til mín og við fórum að borða hamborgara og með öllu tilheyrandi og svo beinustu leið í háttinn að lúra og svaf ég langt framyfir hádegi í gær á meðan Dándi tók alla íbúðina í gegn það var : skúrað skrúbbað og bónað og burtsað á sér skóna:O)

KYS KYS @->->--->------