Dadarada Daaa
-Það var auglýst í Re/Max blaðinu sem fylgir fréttablaðinu í gærdag að íbúðin var opin fyrir skoðanir í gær í rúman hálftíma, það komu 4 og voru víst 2 af þeim mjög áhugasamir.
-Steinsi litli er kominn með barkabólgu svo gærdagurinn fór aðalega í spítalaferðir, þar sem honum voru gefnar stertöflur sem að var sprautað uppí litlu hetjuna og svo þurfti elskan að vera með svona púst í gegnum slöngu úr vél í alllangan tíma og var orðinn frekar pirraður undir restina:/
-Ég er í átaki í skólanum ætla að reyna að trompa þennan blessaða skóla af og byrjaði í gærkvöldi á fullu í íslenskunni að undirstrika og glósa, mamma og pabbi uppfærðu glósurnar mínar í tölvunni með outlines og prentuðu út til skiptis handa mér svo nú er bara að sýna gömlu hjónunum (gamla settinu) hvað maður er getur:O)
...Ætla ekki að hafa þetta lengra er svo sibbin eftir helgina svaf lítið í nótt útaf litla sólargeislanum og í fyrrinótt vorum við Begga á djamminu sem ég er alfarið hætt HÆTT jámm ég og við erum orðnar alltof gamlar fyrir þetta fórum rúmlega 23 í bæinn og vorum komnar heim fyrir tvö í kringum svona hálf tvö semsagt gamlingjar sem eigum bara að vera heima að knúsast og kúrast með mönnunum okkar, enda komu strákarnir beint af karlakvöldinu til mín og við fórum að borða hamborgara og með öllu tilheyrandi og svo beinustu leið í háttinn að lúra og svaf ég langt framyfir hádegi í gær á meðan Dándi tók alla íbúðina í gegn það var : skúrað skrúbbað og bónað og burtsað á sér skóna:O)
KYS KYS @->->--->------
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home