Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, mars 06, 2008

Tanaður Í Drasl

!!nú er þjóðarátak vörn gegn ljósabekkjanotkun!!
www.hudlaeknastodin.is 
Nú gengur yfir herferð með yfirskriftinni HÆTTAN ER LJÓS...

Sjálf greindist ég með húðkrabbamein af völdum sólarofnots ef svo má segja fyrir akkurat ári síðan eða í apríl s.l. það fannst sortuæxli á fyrsta-grunnstigi, sortuæxli er auðþekkjanlegasta enn lang alvarlegasta húðkrabbameinið, það á auðveldast með að fjölga eða dreyfa sér myndar svokölluð meinvörp, grefur sig ofan í húðina birtist oftast sem dökkur eða rauðleytur blettur útfrá fæðingarbletti svo blæður oft úr honum, getur verið ertandi þannig að það myndast kláði í honum, ef hann er ekki greindur og fjarlgður með aðstoð lýtalæknis hið snarasta eykst hættan á að hann dreyfi sér útí önnur líffæri þá aðalega lifrina, magann og lungun enda eru allir sem greinast með þessa sort af húðkrabbameini sendir í mjög öruggt eftir lit, oft á ári í 6-7 ár á meðan aðal hættan vofir yfir og líka í fjölmargar blóðprufur og röntgen eða ómskoðun þar sem líffærin eru öll skönnuð með svokölluð skuggalyfi, þau eru plötuð og þá má vel sjá hvar hafa myndast æxli eða svokallaðir blettir ótrúlegt hvað maður er með þetta allt á hreinu:O) enn sem betur fer var ekkert sjáanlegt hjá mér svo ég er bara í venjulegu eftirliti næstu árin eða allt til 2012-13....

Ég vil vara fólk við ofnotkun sólarljóss hvers kyns sem hún er hvort sem það eru bekkir eða sólin okkar sjálf sem skín allt í kringum okkur, nota sólarvörn og alls alls ekki fara í ljós. Sólin getur verið hvort í senn besti og versti vinur manns:O) munið það börnin góð.

-er farin að kúra með litla manninum mínum sem er farinn að segja babbi og senda mér hundrað fingurkossa á dag.....pís át hómís

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Allveg sammála þér með þessi ljós ! Stórhættulegt alveg !

Sakna þín alveg robbobbslega mikið líka.

Pís át hómííííí.....

5:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home