Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, desember 19, 2006

...

...Hvaða snillingur fann upp jólaölið?? Merkilegt hvað það er gott að sötra á því-ég fæ ekki nokkurn tíma leið á því;o)

knus & kram-Betz í hugleiðingum...

Jólastússerí...

...jæja í gærdag og gærkvöldi lögðum við kjarnafamilían (pabbsi, mammsa, Gulli st. Beta og Dándi) leið okkar í jólaleiðangur, kaupa það sem kaupa þurfti svo við gætum haldið hátíðleg jól;o)

...Ég er stolt að segja frá því að ég er búin að öllu nema versla eina gjöf sem fæst víst ekki um þessar mundir á landinu, svo því verður bara reddað ;) og á eftir að kaupa í jólamatinn, annars verður þetta óttalega rólegt og kósí e-h hjá mér eða okkur matur hér og þar og þurfum ekkert að pukra við að elda sjálf um jólin, létum bara bjóða okkur útum allar trissur;)-tíhí...

Er að ribbna úr stolti var að fá þessa ágætu einkunn-bíð eftir hinum enn get sagt að ég er stolt af sjálfri mér og hreykin af því sem ég er búin að afreka;) og ætla að gefa sjálfri mér klapp á kollinn og á öxlina...

Farin að kúra aftur uppí gúrmerúminu að horfa á restina af u, me & Dupree!!-tíhí;) og japla kanski á jólakonfekti, hver veit?

Knus Knus...og til ykkar í jólastressinu gangi ykkur vel:)

fimmtudagur, desember 14, 2006

3vídd

Við Dándi fórum í þrívíddarsónar í gærmorgun og fengum að gæjast í jólapakkann;o)...litla barnið er með sama nef og mamma sín og alveg eins höku og pabbi sinn, með þykkar og kræsilegar varir, algjört krútt!!

Í gær fór ég líka í annað prófið mitt, markaðsfræði-sigur í samkeppnum og á morgun er ég að fara í lokaprófið í tölfræði, og er uppá haus að læra...

Mér fynnst ég vera komin aftur í 5 ára bekk, því ég er að læra um mengi nánartiltekið talnamengi, hvað eru mörg epli í pokanum stök þegar búið er að para öll saman tvö og tvö, nei ekki alveg enn þetta er sama hugsun á bakvið þetta;)

...habla con ella...

þriðjudagur, desember 12, 2006

Kæri Jóli...

...Ætli jólasveinninn stoppi við gluggann minn í nótt eins og hann lofaði??...er að pæla í að setja svarta stígvélið mitt útí glugga og bíða svo í ofvæni til morgundagsins-tíhí;o)

1/3 final

jámm er búin með eitt próf af 3, á eftir tölfræði próf á föstudag og markaðsfræðipróf á morgun;/ strembið enn samt ekki ef maður undirbýr sig vel og skipuleggur;o) ég er kona með bein í nefinu eða ég vil halda það og reyni að vera eins skipulögð og ég get...

Í fyrramálið erum við Dándi að fara í þrívíddarsónar og bíðum í ofvæni;) þetta verður allt tekið upp á videó og sýnt í þættinum fyrstu skrefin á skjá einum snemma á næsta ári;) það verður spennandi að sjá hvort barnið líkist meira mömmsu eða pabbsa...ég ætla að slumpa á pabbsann...enn það kemur allt í ljós í fyrramálið.

Ég er að hlusta á dvd diskinn með Coldplay og stelst til að gægjast á skjáinn inn á milli annars er ég húkt af Dawson´s creek á DR1/dönsku stöðinni alla virka daga rétt rúmlega tvö að íslenskum staðartíma...mikið drama þar í gangi og gott að taka sér pásu og lýta á einn þátt áður enn laggst er í lestrargeðveikina aftur...

Er orðin óborganlega svöng og ætla að fynna á netinu e-h djúsí svaka fína kína rétt-tíhí...Liljurnar frá honum Dánda mínum sttanda ennþá þótt ótrúlegt rúmri viku síðar þetta er hreint makalaust...ég gæddi blómin e-h nýju lífi, ég er farin að undrast ég er svo vön að drekkja plöntum og blómum á innan við viku;/

Þetta brjálaða veður sem kom um helgina...áttum að fara í afmæli til Gauju frænku Dánda í flugskýlinu í nauthólsvík enn fórum eftir jólaboðið hjá staffinu hans Dánda bara beinustu leið á Laugarásvideó og þaðan heim kúrandi undir einni sæng að horfa á Voksne Mennesker sem er típísk dönsk dægurmynd...mæli eindregið með henni...ég var við öllu búin um helgina þar sem búið var að vara við að binda jólaskraut utandyra vel niður eða taka það jafnvel inn yfir mesta ofsaveðrið enn Gulli St. og Dándi festu það svo vel úti um síðustu helgi að það haggaðist ekki;)

2 í aðventu í fyrradag og tendraði ég í tilefni af því á öðru kertinu gyðingakertinu held ég æji er svo vitlaus í þessu enn það er e-h svo spennandi við það að halda fyrstu jólin sín í sambúð get ekki lýst þessari óborganlegu tilfinningu, Beta litla jólabarn...

knus knus

laugardagur, desember 09, 2006

Merry X-mas

Nú styttist í að jólasveinarnir komi til byggði...mér var tjáð fyrir skemmstu að ekki líði á löngu þar til jólasveinninn muni stoppa við gluggan minn og gefa mér í skóinn;o) bíð ég eftir fyrsta stoppii í eftirvæntingu...ég er búin að taka fyrsta prófið sem var íslenska er svo að undirbúa mig fyrir markaðsfræðiprófið og stærðfræðina sem er í næstu viku-í kvöld erum við Dándi að fara í mat til Gústa og kærustu (vinnufélaga Dánda) í jólaboð;)...svo heldur Gauja frænka hans Dánda uppá afmælið sitt í flugskýlinu í nauthólmsvík einnig í kvöld, minnir að hún sé að verða fertug...svo vil ég nota tækifærið og óska mömmu alls hins besta því hún varð 41 árs í gærdag;*;* kiss kiss & knus knus mammsa.

Það má segja að jólin komi tímanlega hjá okkur skötuhjúunum að Rauðalæk 71, erum við búin að skreyta íbúðina hátt og látt, innan sem utan...punkturinn yfir iið var þegar Gulli St. kom og var hjá okkur fyrir akkurat viku síðan og hjálpuðust þeir tveir að uppáhaldskarlarnir mínir við að festa grenið og vefja seríuna úti á svalarhandriðinu;)...búið að er að pakka inn öllum gjöfunum 20 talsins, skrifa og frímerkja vel öll jólakort sem´aað senda, baka þrjár jólakökusortir, vefja og kveikja á fyrsta kerti aðventukransinns og taka nokkra skápa og nokkur rími í gegn-massa jólahreingerning;)

Ég á erfitt með að skrifa meira á tölvuna í þessu tiltekna bloggi sökum þess að ég er algjör klaufi og var að naglalakka mg með jólalitnum og það rennur allt til ég er svo óþolinmóð að ég nenni sjaldnast að bíða eftir að það þorni lakkið;/....þótt ótrúlegt sé enn satt þá lifa ennþá hjá mér viku gamlar liljur sem Dándi gaf mér-og tel ég mig vera mjög stolta af því, oftast næ ég að drekkja blómum innan viku;) enn þessar elskur ætla víst að endast e-h áfram;o) The real houswife of Reykjavík City!!!!

MerrY X-Mas píppol knus & kram Betz;o) jólastuðstelpa