Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, desember 12, 2006

1/3 final

jámm er búin með eitt próf af 3, á eftir tölfræði próf á föstudag og markaðsfræðipróf á morgun;/ strembið enn samt ekki ef maður undirbýr sig vel og skipuleggur;o) ég er kona með bein í nefinu eða ég vil halda það og reyni að vera eins skipulögð og ég get...

Í fyrramálið erum við Dándi að fara í þrívíddarsónar og bíðum í ofvæni;) þetta verður allt tekið upp á videó og sýnt í þættinum fyrstu skrefin á skjá einum snemma á næsta ári;) það verður spennandi að sjá hvort barnið líkist meira mömmsu eða pabbsa...ég ætla að slumpa á pabbsann...enn það kemur allt í ljós í fyrramálið.

Ég er að hlusta á dvd diskinn með Coldplay og stelst til að gægjast á skjáinn inn á milli annars er ég húkt af Dawson´s creek á DR1/dönsku stöðinni alla virka daga rétt rúmlega tvö að íslenskum staðartíma...mikið drama þar í gangi og gott að taka sér pásu og lýta á einn þátt áður enn laggst er í lestrargeðveikina aftur...

Er orðin óborganlega svöng og ætla að fynna á netinu e-h djúsí svaka fína kína rétt-tíhí...Liljurnar frá honum Dánda mínum sttanda ennþá þótt ótrúlegt rúmri viku síðar þetta er hreint makalaust...ég gæddi blómin e-h nýju lífi, ég er farin að undrast ég er svo vön að drekkja plöntum og blómum á innan við viku;/

Þetta brjálaða veður sem kom um helgina...áttum að fara í afmæli til Gauju frænku Dánda í flugskýlinu í nauthólsvík enn fórum eftir jólaboðið hjá staffinu hans Dánda bara beinustu leið á Laugarásvideó og þaðan heim kúrandi undir einni sæng að horfa á Voksne Mennesker sem er típísk dönsk dægurmynd...mæli eindregið með henni...ég var við öllu búin um helgina þar sem búið var að vara við að binda jólaskraut utandyra vel niður eða taka það jafnvel inn yfir mesta ofsaveðrið enn Gulli St. og Dándi festu það svo vel úti um síðustu helgi að það haggaðist ekki;)

2 í aðventu í fyrradag og tendraði ég í tilefni af því á öðru kertinu gyðingakertinu held ég æji er svo vitlaus í þessu enn það er e-h svo spennandi við það að halda fyrstu jólin sín í sambúð get ekki lýst þessari óborganlegu tilfinningu, Beta litla jólabarn...

knus knus

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home