Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, desember 14, 2006

3vídd

Við Dándi fórum í þrívíddarsónar í gærmorgun og fengum að gæjast í jólapakkann;o)...litla barnið er með sama nef og mamma sín og alveg eins höku og pabbi sinn, með þykkar og kræsilegar varir, algjört krútt!!

Í gær fór ég líka í annað prófið mitt, markaðsfræði-sigur í samkeppnum og á morgun er ég að fara í lokaprófið í tölfræði, og er uppá haus að læra...

Mér fynnst ég vera komin aftur í 5 ára bekk, því ég er að læra um mengi nánartiltekið talnamengi, hvað eru mörg epli í pokanum stök þegar búið er að para öll saman tvö og tvö, nei ekki alveg enn þetta er sama hugsun á bakvið þetta;)

...habla con ella...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home