Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

miðvikudagur, janúar 30, 2008

Don´t Panic

ég hef verið að hlusta á gamlan DVD disk með Coldplay frá tour 2002-2003 og er hann óendanlega góður sjálf fór ég á tónleika með þeim í Höllinn um jólin 2002 enn þá bauð Hildur bestasta vinkona í heima mér með sér átti víst e-h tvo ágætis miða. Ég er búin að vera að stressa mig undanfarið útaf námsefninu og þá eiga við þessi þrjú ágætu orð Do Not Panic('')

Það er svo furðulegt að byrja að lesa til prófs í spænsku eftir að hafa lagt hana á hilluna í þrjú ár og svo byrja aftur og það er eins og ég hafi ekki nokkru sinni hætt að æfa mig í henni ég er hálf reyprennandi í henni nei kanski ekki alveg enn það er engin furða þar sem ég bjó um nokkuð langt skeið úti á Spáni nánar tiltekið í Cataloniahverfinu í Sant Cugat sem er rúmur hálftíma akstur eða korter með lest frá barcelona höfuðborg kapítalismans;) og menningarkúltúrsins svo ekki sé meira sagt og þar lærði ég að bjarga mér ansi vel aðeins rétt rúmlega 12 ára að aldri í borg sem aðeins þeir allra ríkustu töluðu ensku þ.e.a.s. þeir sem voru það efnaðir að þeir gátu keypt enskukennara á sumrin yfir fríið í skólunum handa börnunum sínum enn það var mjög sjaldgæft að eldra fólkið kunni e-h til í tungumálinu, enda var besta vinkona mín úti sem hét líka Elízabeth alltaf með spænsk-enska orðabók í höndunum, svo var stuðst einnig mikið við fingrahreifingar og teikningar ótrúlegt hvernig börn ná alltaf að bjarga sér á hinn ótrúlegasta hátt.

Er farin að hita mér velling/hafragraut. P.s. Sigurlaug vinkona er að fara að eiga á næstu dögum/vikum og sendi ég henni og við fjölsk. sterka strauma og vonum að allt eigi eftir að ganga eins og í sögu:)

knus og 1000 billjón kossar betz.

fimmtudagur, janúar 24, 2008

XD

Ég lýsi yfir stuðningi nýs meirihluta í borgarstjórn.

Takk pent fyrir mig

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Bills Bills they kills

hver fann upp reikninga það er lang leiðinlegasta tímabil mánaðarins þegar maður fer yfir reikninga og bókhaldið, fynnst allt í lagi að stúdera bókhald hef ekkert á móti því enn geri ekkert leiðinlegra enn að fara yfir mitt eigið og skipuleggja. ARRRG

Enn yfir í allt annað þeir sem þekkja mig vel vita að ég er algjör kaffisælkeri og elska góðan rjúkandi bolla, ég hef verið að prófa mig áfram enn virðist alltaf festast í einni týpu í einu eins og í sumar drakk ég bara kaffi blanco og svo i haust var það bara cappuccino enda ný búin að eignast eina slíka gersemis vél svo rétt um daginn var það japansi drykkurinn macchiato og svo núna blanda ég þessu öllu saman enn er hrifnust af double espresso svona getur maður leikið sér með bragðlaukana rétt eins og greifi eða barón;O) thíthí.

Enn er farinn að læra best að ljúka þessu af svo maður geti orðið pínku fullorðinn og farið í hovedskolen einn góðan veðurdaginn.

Adios Amigos

þriðjudagur, janúar 22, 2008

!!!!

Í grkvöldi komst ég að því að ég hefði týnt eða öllu heldur misst fyrir utan heima annan leðurhanskann minn sem frænka mín átti sem féll frá árið 2002 ég er svo óttalega mikil dramadrottning að ég tek allt svo persónulega ég hélt mikið uppá hanskana og hann hafði persónulegt gildi fyrir mig, svo ég leitaði hans með hjálp Dánda með tárin í augunum jafnt úti sem inni og svo rétt fyrir hádegi í dag fór ég útí garð aðeins niður götuna og á hlið húsins jafnt sem úti á planinu :/ án nokkurs árangur og er ég mjög leið yfir því enn svo sé ég litla sólskynsbossann minn hann Steinar Mána og þá hætti ég að vera sár.

Knús og 1.000 kossar

miðvikudagur, janúar 16, 2008

papercuts

!! það er ótrúlegt hvernig ég næ alltaf að skera mig á agnar smáum blöðum ég bara skil þetta hreynlega ekki.

Sonur minn er orðinn óður í snjóþotuferð og verður helst að fara í eina strax eftir hádegi go svo aðra ekki seinna enn 6 (´´)meiníak ég skil hann vel ég elska það sjálf komin hátt á þrítugs aldurinn.

Þá fer skólinn að byrja í næstu viku nánar tiltekið strax eftir helgi ég skráði mig í ísl 403, rek 103, stæ 303 og loks í spæ 403 alls 12 einingar ætla nú að reyna að trompa þessu af, það er bölvuð vitleysa að sitja eftir með hundrað og 20 einingar og gera svo ekkert meira í því nú er bara harkan sex og ljúka þessu sem fyrst:) og koma svo...þarf bara smá drifkraft er svo langt síðan ég stundaði almennilega skóla síðast að verða rúm 2 ár.

Ég er búin að sakna Hildar bestu vinkonu minnar ekkert smá undanfarið og er að velta fyrir mér að kanski kíkja út á tengdó og hana í leiðinni svona rétt aðeins að skjótast með pollan. Vonandi fer salan bara hjá tengdó að ganga í geng svo við getum farið út og hjálpað þeim að pakka ég veit þau yrðu mjög ánægð með það og sjá lillan í leiðinni þau sakna hans alveg obboslega mikið enda er annað hægt?

Er að hugsa um að leggjast með táslurnar uppí rúm og horfa á desperat housewifes 4 seríuna eða H.Piroit.

Kærlig Hilsen fra hele familien-farvel.

mánudagur, janúar 14, 2008

KIRSUBERJAKOSS

Það er liðin heil meðganga síðan ég skrifaði síðast hugrenning kempunnar það er svo margt búið að gerast, við giftum okkur í enda sumarsins nánar tiltekið 25. ágúst og fengum óteljandi fallegar gjafir og það mættu um 140 manns í veisluna og var allt gert til þess að við myndum njóta dagsins til fulls, við fengum margar fallegar ræður frá ættingjum og vinum, gestirnir máluðu listaverk í sameiningu handa hjónakornunum sem nú prýðir stofuvegginn okka, okkur var komið á óvart með því að veislustjórinn Ólöf frænka (systir mömmu) fékk unga og efnilega fiðluleikkonu til þess að spila undir borðhaldi svo voru foreldrar mínir búnir að útbúa slideshow með myndum af okkur litlu famelíunni sem sýndar voru á breiðtjaldi og látnar ganga alla veisluna;o) virkilega fallegt @>->----svo áttum við dekurmestu nótt lífs okkar og morguninn eftir uppá Hótelherberginu á Grand Hótel, þar sem við fórum í nuddfreyðibaðkar, drukkum freyðivín og nörtuðum í konfekt og ferska ávexti á bakka jammí það var svo notalegt og svo var fengið sér english breakfast með öllu tilheyrandi morguninn eftir beinustu leið uppí rúm-roomservise;) 

Knús og billjón kossar