KIRSUBERJAKOSS
Það er liðin heil meðganga síðan ég skrifaði síðast hugrenning kempunnar það er svo margt búið að gerast, við giftum okkur í enda sumarsins nánar tiltekið 25. ágúst og fengum óteljandi fallegar gjafir og það mættu um 140 manns í veisluna og var allt gert til þess að við myndum njóta dagsins til fulls, við fengum margar fallegar ræður frá ættingjum og vinum, gestirnir máluðu listaverk í sameiningu handa hjónakornunum sem nú prýðir stofuvegginn okka, okkur var komið á óvart með því að veislustjórinn Ólöf frænka (systir mömmu) fékk unga og efnilega fiðluleikkonu til þess að spila undir borðhaldi svo voru foreldrar mínir búnir að útbúa slideshow með myndum af okkur litlu famelíunni sem sýndar voru á breiðtjaldi og látnar ganga alla veisluna;o) virkilega fallegt @>->----svo áttum við dekurmestu nótt lífs okkar og morguninn eftir uppá Hótelherberginu á Grand Hótel, þar sem við fórum í nuddfreyðibaðkar, drukkum freyðivín og nörtuðum í konfekt og ferska ávexti á bakka jammí það var svo notalegt og svo var fengið sér english breakfast með öllu tilheyrandi morguninn eftir beinustu leið uppí rúm-roomservise;)
Knús og billjón kossar
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home