Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, september 14, 2006

I morgens

jámm á morgun höldum við út-hittum tengdó í einn sólarhring áður enn þau halda út til Bretlands, Mamma ætlar að rúlla okkur uppeftir seinna í dag, ætlum bara að slaka á á Hótelinu, vakna svo semma í fyrramálið fá okkur mrokost og láta skutla okkur á lúxuskerru ;o) útá völl...

Er búin að plana svaka helgar verslunarferð með Hildi og er að kabbna úr spenningi get ekki beðið eftir að hitta hana og fara svo að versla:)

H&M verður mín heimamiðstöð...næstu daga, er hætt að vinna og farin í 100% nám og ætla að taka það með trompi að þessu sinni;* finger's crossed, ætla að vera mjög dugleg og metnaðarfull, þetta verður strembin önn 15 ein. í fjarnámi enn það hefst allt með aðhaldi, maður þarf að kunna sín mörk, svo nú er um að gera að pakka niður skólabókunum, glósubókunum og hele klabben;)

Farin að pakka knus & kram Betz.

þriðjudagur, september 12, 2006

Tilhlökkun;o)

Tveir dagar góða fólk erum að tala um tvo daga í fríið...

Knus & Kram Betz;*.

mánudagur, september 11, 2006

Sumarið er tíminn...

hvað er málið? Er ég farin að misskilja árstíðirnar eller hvad? Það er búið að vera Bong & Blíða í allan dag, ég er búin að rúnta um á bimmanum með rúðuna niðri og japla á jarð-og hindberjaís, það gerist varla betra;o)

3 dagar í köben, kveðjumatur hjá ma & pa á miðvikudag og svo Keflavík downtown city á fimmtudag;o)

Knus Knus Betz.

sunnudagur, september 10, 2006

Sibbin...af að gera ekki neitt

vá hvað ég get orðið syfjuð af engu, reyndar er það ekki alveg satt, verslaði ansi mikið síðustu daga og vaknaði í dögun enn vanalega er ég ekki þessi týpa sem get lagt mig á daginn enn það er víst undanfarna tvo daga hef ég lagt mig um miðjan daginn, merkilegt nokk það;o)

Knus & Kram Betz.

laugardagur, september 09, 2006

Morer sig

Í dag og raunar alla helgina lýtur allt út fyrir að vera rignin-hele ugen!! hvad snakker du om?

Ég er að spá í að hanga inni mest allan daginn í leti kúrandi yfir cry wolf og gera absalút ekki neitt;o) hvernig leggst það í landann?

Kærlig Hilsen Betz.

föstudagur, september 08, 2006

...hugleiðing...

-spurning; Getur e-h sagt mér afhverju Eldbakaðar Pizzur frá Eldsmiðjunni eru svona girnilegar og ljúffengar?
  • Kanski af því að þær eru bragðmiklar.
  • Kanski af því að þær eru glóðvolgar.
  • Kanski, kanski kanski, hver veit? allavega ekki ég...

Nei bara svona pæling, ætla að nota tækifærið og óska Hlyni Frey litla frænda til hamingju með ammælisdaginn, gef honum einn blautan á kynnina þegar ég mæti í kvöld;)

Fönn hreingerningardagur...

...jámm nú erum við Dándi bæði í fríi hann kominn í sumarfrí og ég í 4 daga helgarfrí, um að gera að nýta tíman vel á milli þess sem maður slakar á, í dag er tiltekt númer en, to o tre...ætlum að gera allt rent hátt og látt;o)

Dándi fór að kaupa hreingerningardóterí, hreinsiklúta, það þarf að hafa innan handar/seilingar, rúðuúða, ajax, skúringarefni, uppþvottarlög, stálull, tusku, blautþurrku, viskastykki og pappír að ekki ógleymdum kústi og fægiskóplu...jámm þá held ég að þar sé það upptalið.

Það styttist og styttist í utanlandsferðina okkar, 16 daga lúsusferð til Köben, á Audi bílaleigubíl krúsandi um strandvejen og trilltustu götur bæjarins,tíhí-nei gvuð ég bara segji svona, gera reifarinnkaup í H&M Kids, og gvuð má vita hvað meira heilsa uppá skötuhjúin Hildi & Dóra...

Ég vann mér inn tvö stig, sló tvær flugur í einu höggi þannig er mál með vexti að tengdamamma elskar eina vissa týpu af skóm og haldiði að skvísan hafi ekki dottið inná þá á förnum vegi í fyrradag meira að segja báða uppáhaldslitina hennar;* ég hlýt að fá einn stóran rembingsKOSS fyrir vikið og allt erfiðið að hafa uppá bomsunum;)

Er farin að horfa á endursýningu á DR. Phil þó svo ég ætti í rauninni ekki að vera að eyða dýrmætum tíma í að góan á e-h svona rugl-enn hvað get ég gert forfallinn sjónvarps-og útvarpsfíkill, þetta er ekki í mínu valdi lengur;)

Farvel alle sammen Betz.

þriðjudagur, september 05, 2006

Haustfrí...

...Næsta vika verður tekin með trompi aðeins tveir vinnudagar og svo verður farið í haustfrí, ætlum að gysta á Hótel Keflavík nóttina fyrir brottför, þar sem við verður í lúxus húsnæði, þar sem rómantíkin ræður ríkjum og vakna eiturhress í morgunverð (frokost), svo kemur burri og sækjir okkur og skutlar okkur útá völl, svo er bara að fljúga á vit ævintýranna, ætlum að vera í rúma 16 daga í algjörri slökun taka bílaleigubíl og láta dekstra við okkur;o)

...Ég ætla að gera reifarkaup í H&M og er um að gera að fara að vafra um netið og gera innkaupalista svona í grófum dráttum, er þaggi bara jú veistu ég held það, tíhí.

...Svo komum við eiturhress aftur í byrjun október, ferskari enn nokkru sinni fyrr, nú er bara að taka upp adressubókina, og hringja í Hildi & Dóra og gera boð á undan sér, dusta rykið af ferðatöskunni og hefjast handa við að pakka, hej hej Betz.

laugardagur, september 02, 2006

Hvunndagsfróðleikur

...Í dag er 2 september...
  • Það gerir 12 dagar í að við Dándi förum á Hótel Keflavík í algjöran lúxus;o)
  • Það gerir 13 dagar í brottför frá Flugvelli Leifs Eiríkssonar til Kaupmannahafnar í 16 daga kvíld.
  • Það gerir 13 dagar þar til við verðum komin á e-h trubblaðan bílaleigubíl að rúnta eða krúsa öllu heldur um götur Köben;*
  • Það er svo margt á döfinni, á mörgu þarf að taka, panta nýtt vegabréf (endurstimpla/framlengja um eitt ár), endurnýja debetkortið og pinnúmerið, og pakka, fynna pössunn fyrir Skúla brjálæðing og já þar með er það upp talið, þvo þvott og gera jólahreingerningu!!Stop nei ekki alveg, enn næstum því.

Svo á mörgu er að taka knus Beta annasama;o)