Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

föstudagur, september 08, 2006

Fönn hreingerningardagur...

...jámm nú erum við Dándi bæði í fríi hann kominn í sumarfrí og ég í 4 daga helgarfrí, um að gera að nýta tíman vel á milli þess sem maður slakar á, í dag er tiltekt númer en, to o tre...ætlum að gera allt rent hátt og látt;o)

Dándi fór að kaupa hreingerningardóterí, hreinsiklúta, það þarf að hafa innan handar/seilingar, rúðuúða, ajax, skúringarefni, uppþvottarlög, stálull, tusku, blautþurrku, viskastykki og pappír að ekki ógleymdum kústi og fægiskóplu...jámm þá held ég að þar sé það upptalið.

Það styttist og styttist í utanlandsferðina okkar, 16 daga lúsusferð til Köben, á Audi bílaleigubíl krúsandi um strandvejen og trilltustu götur bæjarins,tíhí-nei gvuð ég bara segji svona, gera reifarinnkaup í H&M Kids, og gvuð má vita hvað meira heilsa uppá skötuhjúin Hildi & Dóra...

Ég vann mér inn tvö stig, sló tvær flugur í einu höggi þannig er mál með vexti að tengdamamma elskar eina vissa týpu af skóm og haldiði að skvísan hafi ekki dottið inná þá á förnum vegi í fyrradag meira að segja báða uppáhaldslitina hennar;* ég hlýt að fá einn stóran rembingsKOSS fyrir vikið og allt erfiðið að hafa uppá bomsunum;)

Er farin að horfa á endursýningu á DR. Phil þó svo ég ætti í rauninni ekki að vera að eyða dýrmætum tíma í að góan á e-h svona rugl-enn hvað get ég gert forfallinn sjónvarps-og útvarpsfíkill, þetta er ekki í mínu valdi lengur;)

Farvel alle sammen Betz.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home