Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Margt þarf að barstússast

það er búið að vera annasamt hjá okkur skötuhjúunum undanfarið, margt þarf að gera, það styttist óðum í barnið svo allt þarf að vera klappað og klárt, klára svefnherbergið, parketleggja o.s.frv. kaupa vöggu, sæng, maxi cosy og þar eftir götunum, við höfum líka reynt að vera dugleg við að fara í sund, bláa lónið þá aðalega, höfum eitt dágóðum stundum á Ítalíu sem er okkar staður, að snæða garbatcco og galzone-ummh...fórum í þorramat um helgina hjá ömmu Siggu, miklar framkvæmdir eru í kjallarnanum, þvottahúsinu og á sameigninni, allt þarf að betrum bæta, svo ég tali ekki um páskana sem nálgast...ég er svo mikið páskabarn, elska að föndra og skreyta á hátíðisdögum;)

Dándi er úti í Köben hjá foreldrum sínum, því faðir hans varð fyrir slysi og er reyndar allur að koma til...ég tala við hann oft á dag og söknuðurinn er ekkert smá, ótrúlega skrítið hvað hægt er að verða ástfanginn af einni manneskju, við erum líka að skipuleggja giftinguna á fullu og svo erum við á leiðinni út til Köben rétt mánuði eftir að lilla beibí kemur í heiminni, Tryggvi er á leiðinni í endurþjálfun og það verður gaman fyrir hann að sjá lilla beibí og fyrir Gerði að eyða tíma með barninu-svo er í umræðunni að hún komi líka í mars í kringum fæðingu og verði hjá okkur í nokkra daga;)...

Ég er búin að láta námið sitja dolítið á hakanum, maður er bara alltaf e-h að væblast, við Dándi notum helgarnar í kúr og rólegheit, höfum tekið uppá því að fara í göngur á sunnudögum og byrja helgarnar á brunch með heitri beyglu eða snæðingi á Prikinu...voðalega menningarlegt par e-h;)...

Annars er bara það að frétta að ég er á fullu að skipuleggja brylluppið-salur, gestalisti, fatnaðaður, matur, skreytingar, skór, slör, hárgreiðsla, förðun allt þarf að vera á hreinu...erum komin með uppáhaldskirkjuna mína og prestinn sem gaf foreldra mína saman, ég er sífléttandi í gegnum bríðartímarit og vafrandi um á netinu og það er úr alveg þvílíkt mörgu að velja;) Ég held það að skipuleggja brúðkaup sé eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert...

...knus knus Betz