Jæja Gott Fólk Smá Öppdate
Ég minn heittelskaði eiginmaður, og 3 vinapör okkar hjóna erum að fara saman í Kajakferð í 2 klst. helgina 21. júní n.k. og síðan í sund beint á eftir og endum svo á Fjöruborðinu í mat, við stelpurnar erum alalr búnar að vera vinkonur frá því í 9 ára bekk og verður þetta algjört ævintýri foreldrar mínir og bróðir fóru einu sinni í þetta og sagði mamma þetta vera geggjað gaman.
Í gær fórum við litla familían saman aðeins í Hafnarfjörð, því Hafnarfjarðarbær varð 100 ára um helgin og síðan keyrðum við Krýsuvíkurleiðina og enduðum aðeins á rúntinum um miðbæinn þar sem stóðu yfir Hafnardagar (Sjómannad.) og fórum síðan heim horfðum á seríu 4 af Despó þætti 16. og 17. þá nýjsustu og síðustu voru sýndir í vikunni sem leið þar vestra og horfðum svo á helminginn af myndinni Dan In Real Life fórum því næst í afmæli hjá Gulla afa gamal í vöfflur, rjóma, sultu, sykur og heitt kakó og því næst heim að ljúka við myndina sem var alveg hreint frábær og enduðum á að horfa á What Happens In Vegas sem var ekkert síður fyndin alveg stórskemmtilega bara.
Ég er búin að sitja límd við sjónvarpsskjáinn því við vorum að taka inn stöð 2, bíórásinni og sirkus aftur og endalaust margt að horfa á þar á bæ, vorum með fræðslupakkann og sýn enn vantaði aðalstöðina, svo fer Evrópumótið að hefjast í Fótbolta og þá verður kátt á bæ.
Hef þetta ekki lengra að sinni þarf að ná að glósa smá í ljóðum og kvæðum áður enn ég fer í vinnuna, jú svo sóttum við Gulli Steinar mömmu og pabba útá Leifstöð á Föstudags morguninn eða aðfaranótt föstudagsins og fengum við fjölsk. alveg heilan helling af avrningi fékk ég Gucci og Tous töskur, nýjasta Diesel ilmvatnið, svitaspreyið og bodylotionið, nýjasta Diesel rakspíran, tveir Levis bolir handa litla snáða, Bubba Byggir dvd númer 9, allskyns lakkrís því það er ekki hægt ða koma heim frá Spáni án hans, Kanebo meik og Dior maskara. Og svo flaug pabbi til London í Bissíness ferð á sunnudaginn og verður í viku og kaupir eithvað veglegt þar líka, það efast ég ekki um.
Adios Amigos...
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home