Merry X-Mas
Já það er hefur verið alltof mikið að gera hjá mér að slaka á að ég hef ekki haft tíma til að blogga einu sinni;o)
Það er allt gott úr Rauðalæknum að frétta, bara rólegheit, átum yfir okkur um jólin og slökuðum 100% á, nei, meira ef það er möguleiki!!
Ég trúi varla að jólin séu að enda komin á morgun verður hangikjöt og uppstúfur í Mávahlíðinni til að kveðja þessa blessuðu jólahátíð sem að mínu mati er alltof fljót að líða;)
Ég ætla að leyfa skrautinu að vera uppi fram yfir helgina, slekk bara á ljósunum...það getur enginn abbast uppá mig útá það...eða er það;)??
Ég fékk eina flottustu gjöf sem ég hef augum litið um þessa blessaða ævi mína frá honum Dánda mínum-gullhálsfesti hjartalaga og lokka í stíl með steinum, bling bling casíng, náttslopp og undirfatasett, ég var agndofa með þessar dýrindisgjafir í fanginu, sat á aðfangadag með undrunarsvipinn uppmálaðan!! ég gaf honum heilsukodda frá svefn & Heilsu og nýjustu seríuna af simpsons og var bara þokkalega ánægð með þá gjöf enn þegar ég opnaði mína hverja á eftir annarri þá stóð ég nánast á öndinni, gvagg gvagg-tíhí.
Það er hlupið í mig e-h kvef og svo er ég að fá eina feita frunsu framan á vinstri efrivörina-skemmtilegt haaaa? nei ekki alveg enn sovir reddar málunum, ég vona að ég lifi þetta af-lýtandi út eins og e-h greppitríni;)
Knus & Kram Betz.;*;*
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home