Dedda Litla Prinsessa-Lukkuleg Pempía Á Pinnahælum

1. Eigandi Elísabet Halldórsdóttir 2. Eiginmaður Þrándur Tryggvason 3. sonur Steinar Máni Þrándarson 4. Lukkuleg pempía á pinnahælum

þriðjudagur, janúar 16, 2007

fæðing, gifting, stúdent

...það er þvílíkt margt á prjónunum hjá okkur skötuhjúunum í Rauðalæknum næstu mánuði, þetta verður annasamt ár.

  • fæðing frumburðar okkar um miðjan marz mánuð;o) þvílík eftirvænting þið getið rétt ímyndað ykkur.
  • gifting í lok ágúst mánaðar;* með viðeigandi veislu og alles.
  • ég lýk náminu frá verslunarskólanum um jólin og stefni á frekara framhaldsnám haustið þar á eftir;).

-Næstkomandi fimmtudagskvöld förum við á fyrrihluta námskeiðis sem er rekið af heilsugæslusvæðunum (mæðravernd), þar verður farið á tveimur kvöldum í gegnum öll grunnatriði fæðingar og fyrstu skrefanna þar á eftir.

-Á fimmtudagskvöldið ætlum við mútta líka í búðarráp og versla, bleyjur, taubleyjur, samfellur og hosur á lilla beibí;) og enda kvöldið á dinner out!!

Ég er búin að vera þvílíkt löt við að læra undanfarna daga, enn búin að vera eins og e-h ofurheimilisfrú, hef þrifið og þrifið allt hátt & látt, veit ekki hvaðan þessi orka kemur...

Farin að horfa á fréttirnar ,,vil benda öllum bíómyndaáhugamönnum á myndina Black Daliah,, fengum hana lánaða og sátum stjörf yfir henni allt frá fyrstu setningu til endapunktsins. Knus Knus

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

koma svo betulingur skrifa e-h.... : ) hvað er að frétta af þér og svona? búin að finna rétta kjólinn or ??? : )

8:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home