VerkaLýðsdagurinn
Í dag er búið að era nóg að gera:
*vaknað og farið í morgunfrokost til tengdó úti á Eyðistorgi, bakkelsi og te-ummh og dýrindisostar.
*Rétt fyrir hádegi lagt í 'ann og keyrt í átt að hvalfyrðinum, inní þingvallarhrepp og þaðan til selfossar þar sem var stoppað og fengið sér kökur og með því.
*rétt rúmlega fjögur skutlað tengdó niður á listasabbn og drifið sig í ammæli til Þráins litla frænda.
*nú ligg ég dauðþreytt uppi í sófa og gónandi á imbann á dr. phill og bíð í ofvæni eftir að Þrándur kemur heim frá hamborgarabúllunni með einn glóðvolgan handa mér.
Í fyrramálið förum við í sónar og fáum að sjá litla hjartsláttinn hjá krúttinu okkar sem er í ofninum mínum;o) svo ætla ég að ráðast í breytingar og taka íbúðina okkar gjörsamlega í gegn á næstu viku;o) óskið mér góðs gengis. Ég var að spá í að fara í kröfugöngu enn...ekki alveg minn stíll þósvo ég sé óttalegur hippi inn við beinin...
p.s. Vildi benda ykkur á að hann Þrándur minn fæddist á þessum merka degi fyrir rúmum 27 árum síðan og átti að hljóta nabbnið Lýður enn sem betur fer fékk hann betra og sterkaara nabbn;)
+copy.jpg)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home